samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni kærlega fyrir góða ræðu. Það sem mig langar aðeins að forvitnast um hjá hv. þingmanni er varðandi þá umræðu sem hefur verið hér um m.a. aukningu inn í samgöngumálin, sér í lagi þegar maður horfir á fjármálaáætlun sem við eigum eftir að ræða, það plagg sem liggur fyrir í fjármálaáætlun. Það er svolítið áhugavert þegar maður skoðar þar að í raun og veru var sú fjárheimild sem var í fjárlögum til samgöngu- og fjarskiptamála 2025 og var samþykkt þá af fyrri ríkisstjórn upp á 72 milljarða tæplega og í fjárlögum ársins 2026 er hún komin í 76 milljarða. Þetta eru rúmir 4 milljarðar sem hækkunin er og hún heldur út tímabilið en lækkar síðan á seinni hluta og endar í 74 milljörðum. Það er því alveg ljóst að þessi umtalaða hækkun í samgöngumálum er kannski minni en menn hefðu getað haldið af umræðunni, sérstaklega hjá fulltrúum meiri hlutans, sér í lagi þar sem við vorum hér í umræðu ekki fyrir löngu að samþykkja m.a. veiðigjöld, kílómetragjald og vörugjöld upp á 18,3 milljarða sem okkur var lofað inn í samgöngur.
Spurningin mín er í raun og veru ósköp einföld til hv. þingmanns: Finnst hv. þingmanni þarna fara saman hljóð og mynd miðað við það sem okkur var lofað hér í umræðunni og meiri hlutinn talaði um og það sem kemur síðan fram í fjármálaáætlun?