157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:30]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Nú verð ég að segja að ég hef ekki rýnt þessar tölur en get staðfest að útreikningurinn er réttur, mismunurinn er 4 milljarðar. Ég geri ráð fyrir því að ef innviðafélaginu er ætlað eitthvert hlutskipti í því að halda uppi fjárveitingum til samgönguáætlunar þá sé ég alla vega ekki, eins og ég horfi á dæmið núna, hvar það liggur. En mér finnst vera nokkuð augljóst miðað við þær tölur sem hv. þingmaður nefndi hér að þarna er alla vega um augljósan samdrátt að ræða og það geti þá í raun í mínum huga kannski ekki þýtt annað en að hér sé eitthvað verið að draga úr hvað þetta varðar.

Varðandi þá viðbót sem kæmi í gegnum innviðafélagið treysti ég mér ekki til að svara því hvernig menn sjá það fyrir sér til lengri framtíðar en ég vil alla vega skora á núverandi ríkisstjórn að draga ekki úr útgjöldum til samgönguáætlunar og ætla innviðafélaginu þar viðbót því að ég lít svo á að innviðafélagið sé hrein viðbót við fjárfestingar í vegakerfinu okkar og gefi þá líka meiri fjármuni eða að það verði auðveldara að losa um fjármuni sem hafi þá verið ætlaðir í verkefni sem innviðafélagið tekur að sér og geti þá nýst til annarra verkefna í samgönguáætlun. Það er nú nefnt dæmi í nefndarálitinu núna um Kjalarnes og bent á í dæmaskyni, eins og ég lít á það, hvernig hægt væri að ráðstafa t.d. þeim 6,3 milljörðum sem ætlaðir voru í Kjalarnesið með því að dreifa þeim á samgönguáætlun.