157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:32]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Ég deili þeim skoðunum með hv. þingmanni að það er svolítið erfitt að horfa inn í þetta vitandi í raun og veru ekki varðandi innviðafélagið og hvað innviðafélagið ætlar að koma með í púkkið, en er sammála honum í því að það yrði þá viðbót og auðvitað er eitthvað sem getur losnað í samgönguáætlun á móti sem verður þá til aukningar.

En spurningin mín er þá, í framhaldi af andsvari hv. þingmanns, hvort honum finnist ekki svolítið erfitt að vera að ræða hér um samgönguáætlun og fjármálaáætlun í kjölfarið á henni þegar við höfum í raun og veru ekki hugmynd um það hvaða verkefni við erum raunverulega að tala um að muni koma til framkvæmda á næstu árum vegna þess að þau eru hvorki í samgönguáætlun né í fjármálaáætlun. Er ekki svolítið skrýtið að vera að ræða um samgönguáætlun til næstu ára, til 2030, vitandi það að það eru einhver verkefni þarna úti, (Forseti hringir.) við vitum ekki hver þau eru og við vitum ekki hvenær þau munu koma eða hvort þau munu koma (Forseti hringir.) en við eigum að taka ákvörðun um áætlunina.