157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:36]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Það segir sig sjálft þegar við ræðum um samgönguáætlun að þá er nóg aldrei nóg og réttlætinu verður aldrei fullnægt og ég held að við þurfum að horfast í augu við það. Verkefnin eru stór og mikil af mörgum ástæðum. Í grunninn erum við fámenn þjóð í stóru landi og þrátt fyrir að við höfum staðið fyrir stórum samgöngumannvirkjum á undanförnum áratugum þá hefur okkur fjölgað, ferðamönnum hefur fjölgað og landið byggst þannig upp að við þurfum að gera betur. Mér heyrist nú vera samhljómur, ekki bara meðal þings heldur þjóðar, um að fara í stórátak þegar kemur að samgöngumálum. Auðvitað hefur það gert okkur erfiðara fyrir að fara bæði í gegnum Covid og Reykjaneselda. Ástandið væri allt öðruvísi ef við hefðum getað nýtt þá fjármuni sem fóru í það í samgöngumannvirki. En það gerist auðvitað ekki og til lítils um það að tala.

Í annan stað liggur það alveg fyrir að við erum ekkert að fara í stór umferðarmannvirki nema með sérstakri fjármögnun. Hér hefur verið nefnt margoft að það hefði verið skynsamlegra að klára hið svokallaða innviðafélag áður en við færum í þessa umræðu. Ég hef af því áhyggjur að aðfinnslur eða, getum við sagt, athugasemdir fjármálaráðs séu kannski svolítið að raungerast því þó að þetta félag sé ekki til og miðað við umfjöllun hv. fjárlaganefndar um innviðafélagið, sem var góð að því leyti að við fengum marga umsagnaraðila, þá var nær engin umræða í nefndinni um hlutverk og athugasemdir sem hafa komið fram varðandi innviðafélagið. Það verður að segjast eins og er að þegar maður les nefndarálit meiri hlutans þá virðist manni að annaðhvort hafi meiri hlutinn misskilið málið eða að þeir aðilar sem við erum búin að hitta eftir þetta, sem virðast nú þekkja þetta best og hafa unnið að þessu, séu að misskilja frumvarpið. En við ræðum það kannski betur seinna, gerum það alveg örugglega.

Ég er svolítið upptekinn af svo sem mörgu en ætla að reyna að takmarka mig við ákveðna hluti og þá aðallega samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Eðli málsins samkvæmt eru góðar samgöngur hagur okkar allra. Mörg okkar fara ekki oft til Vestfjarða, allt of sjaldan, en það er ekki gott fyrir okkur að samgöngur séu ekki góðar og það á við um alla staði á landinu. En ég hef af því áhyggjur hvernig menn eru að ganga fram varðandi þessa samgönguáætlun þar sem við erum með stærstu framkvæmdirnar einhvern veginn í greinargerð og við fjölluðum ekkert um þær. Ég er að vísa í hinn svokallaða samgöngusáttmála sem er lítillega minnst á á bls. 102. Hann er vissulega á bls. 103 líka, þetta er í greinargerð með þingsályktunartillögunni, en þetta nær varla einni síðu. Nú kynni einhver að segja: Bíddu, er þetta ekki bara mál sem þú getur klárað á einni síðu?

Virðulegi forseti. Þetta eru fjárfestingar upp á 311 milljarða kr. Það er ekkert rætt og ég veit ekki hvenær menn ætla að ræða fjármögnunina, að af þessum 311 milljörðum eigi að vera 143 milljarðar í einhvers konar veggjöld sem ég geri nú ráð fyrir að Alþingi Íslendinga verði að taka ákvörðun um, ég veit ekki til þess að aðrir geti gert það, en við höfum ekki rætt það neitt.

Í ofanálag eru þau verkefni sem eru í samgöngusáttmálanum ekki tilgreind í samgönguáætlun. Eftir því sem ég best veit þá verðum við að framkvæma eftir samgönguáætlun. Það er ekki þannig að ráðherra geti farið og lagt bara einhvern veg sem er ekki í samgönguáætlun eða göng eða hvað hann vill gera. Annaðhvort verður hann að hafa sérlög eða það verður að vera í samgönguáætlun. Hvort þetta uppfylli þau formskilyrði sem nauðsynlegt er ætla ég ekki að segja til um en í það minnsta er það fullkomlega óeðlilegt að við séum með þessar risaframkvæmdir sem varða alla landsmenn og sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu og við bara erum ekki að ræða það þegar við ræðum samgönguáætlun.

Ég er hér, virðulegi forseti, með breytingartillögu sem mun ekki leysa allan vanda því að mér sýnist að við þurfum að breyta lögum til þess. En þó er það breytingartillaga við tillögu til þingsályktunar sem hljómar svo, með leyfi forseta:

„Á eftir lið 4.8, Hafnir sem orkumiðstöðvar, í 4. kafla, Markmið um umhverfislega sjálfbærar samgöngur, komi nýr liður, svohljóðandi:

4.9. Uppbygging Borgarlínu.

Uppbygging Borgarlínu og einstakir verkefnafasar hennar, svo og önnur samgönguverkefni Betri samgangna ohf., samgöngusáttmálinn og fjármögnun hans, verði kynnt reglulega fyrir umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Aðkoma Alþingis að framkvæmdunum verði tryggð.

Ábyrgð: Innviðaráðuneytið og Betri samgöngur ohf. í samstarfi við sveitarfélög.“

Mér finnst þetta ekki gera það að verkum að þetta sé eins og það eigi að vera en þetta væri bót.

Fyrir utan þessi veggjöld þá hafa einhverra hluta vegna Betri samgöngur, sem eru 99% í eigu ríkisins, farið í að þróa land sem heitir Keldnalandið. Kjósendur gáfu nú skýr skilaboð um það sem þekkja til þess í síðustu borgarstjórnarkosningum — ég man ekki eftir að hafa séð vitlausara skipulag á ævinni. Það er fullkomlega galið, kostaði yfir 100 millj. kr. Bara til að setja þetta í eitthvert samhengi þá var verðlaunatillagan þannig að hún setti eyju úti í miðjan Grafarvog.

Virðulegur forseti. Ég hélt að þetta væri eitthvert grín. Nei, þetta var verðlaunatillagan. Þar á, virðulegi forseti, fólk ekki að fá bílastæði. Það á ekki að fá bílastæði, ef þessi verðlaunatillaga nær fram að ganga, við húsin sín. Það gæti hugsanlega fengið, ef það er heppið, eitt bílastæði við eina íbúð og þarf að ganga mörg hundruð metra til að komast í bílastæðin.

Virðulegur forseti. Þetta er náttúrlega í því hverfi sem ég bý í í borginni og þó að ég byggi í öðru þá breytir það engu. Ég vil bara að menn hugsi aðeins að það sé janúar, fólk að koma heim með börnin sín og innkaupapokana og þurfi að ganga með ungbörn, haldandi á þeim og innkaupapokum nokkur hundruð metra til að komast heim til sín. Þetta er fullkomlega galið. Reyndar hafa verktakar sagt: Heyrðu, þetta er of mikið, við erum ekki til í þetta. En þetta hefur farið einhvern veginn undir radar, það er enginn sem kannast við þetta. Það vill enginn bera ábyrgð á þessu. En skattgreiðendur hafa borgað rúmlega 100 millj. kr. fyrir þessa þvælu.

Síðan erum við, virðulegi forseti, núna með þetta svokallaða innviðafélag þar sem markmiðin eru góð og ég held að ég sé búinn að átta mig á, ekki út af umfjöllun nefndarinnar því að það var ómögulegt að átta sig á því af hverju við vorum að fara út í þetta, hvaða árangri það átti að ná en á fundum sem við þingmenn höfum átt með aðilum þá er maður búinn að átta sig á því til hvers leikurinn er gerður, út á hvað þetta gengur. Það getur hins vegar, eðlilega, því að þetta á að vera sér hlutafélag og rekið á markaðslegum forsendum, einungis tekið þau verkefni sem standa undir sér, þ.e. með veggjöldum. Ef þau standa ekki undir sér með veggjöldum þá þarf að koma framlag ríkisins. Þetta er að erlendri fyrirmynd og ég ætla ekkert að fara í það nákvæmlega núna eins og ég skil málið núna. Við eigum eftir að taka umræðu um það í þingsal því að við gerðum það ekki í nefndinni sem ég hefði talið að væri skynsamlegra en þá vek ég athygli á því að í samgönguáætluninni er ófjármögnuð jarðgangagerð. Hér var, held ég, innviðaráðherra í dag að lofa því að Fljótagöng færu bara af stað á næsta ári. Ég held að hann hafi gert það í fyrirspurnatíma í dag en hann hafði gert það áður líka. Miðað við þær upplýsingar sem við höfum bestar, ef við byggjum Fljótagöng þá munu þau veggjöld standa undir 15% af uppbyggingu og rekstrarkostnaði. 18,5 milljarðar þyrftu að koma frá ríkinu nema einhver myndi vilja gefa okkur 18,5 milljarða til að fara í Fljótagöng. Það eru engar slíkar upphæðir í Fljótagöng í þessari samgönguáætlun. Það er ekkert slíkt. Ef menn ætla að fara að láta innviðafélagið fara í önnur göng — þú getur ekki látið innviðafélagið fara endalaust í óarðbærar framkvæmdir. Það gengur ekki upp miðað við það regluverk sem við erum að vinna eftir. Þá verður að setja fjármuni samt sem áður frá ríkinu og þeir fjármunir eru ekki til staðar þarna.

Ég hef af því áhyggjur að menn séu að búa til væntingar sem ekki er innstæða fyrir og þetta er á fleiri sviðum. Við ræddum hér í dag mjög mikilvægt mál sem eru orkumál á Vestfjörðum. Hæstv. ráðherra er bjartsýnn og stórhuga, það er vel, og segir að Hvalárvirkjun fari af stað, hann muni sjá til þess. Við fögnum því og styðjum það en til að Hvalárvirkjun geti farið af stað þá verður að koma vegur á Ströndum vegna þess að þú þarft að geta flutt efni og annað slíkt þegar þú ert að byggja slíka virkjun. Sá vegur kostar að lágmarki milljarð. Það er ekki gert ráð fyrir honum í þessari samgönguáætlun og ég hef af því áhyggjur, virðulegur forseti, að stjórnarliðar, í þessum málum eins og mörgum öðrum, eru svolítið búnir að mæta og segja að það hafi bara verið vitleysingar sem voru hérna áður og núna séu þeir loksins komnir og kunni þetta og geti þetta og séu bara frekar ánægðir með sig. Meira að segja er ríkisstjórnin þannig, og ég held að það sé einsdæmi í lýðveldissögunni, að hún hélt í alvöru blaðamannafundi með oddvitunum, þar sem oddvitarnir voru bara að fara yfir það með þjóðinni hvað þær væru frábærar. Ég er nú búinn að fylgjast með stjórnmálum frá því að ég var í grunnskóla og ég held að þetta hafi aldrei gerst áður. Þetta er að vísu hætt, sem er kannski frekar sorglegt því að það að hlusta á valkyrjurnar tala um hvað þær eru góðar er auðvitað ákveðin upplifun og við getum sagt að það sé afþreying í sjálfu sér.

Hvað sem því líður þá er erfitt að átta sig á því hvernig þessar stóru yfirlýsingar um þessar miklu samgöngubætur — hvernig menn ætla að ná því. Nú styðjum við það að það sé farið í stórátak. Við styðjum að menn nýti það sem við þekkjum vel, að taka veggjöld. En hér hefur ríkisstjórnin farið þá leið að hækka vörugjöld, kílómetragjald og ýmis gjöld, fer síðan í innviðafélagið sem virðist alla vega ekki vera stjórnarliðum alveg ljóst hvað er eða hvernig á að þróa og enn er mörgum spurningum ósvarað í því, en alveg sama þó að við förum í innviðafélagið, þó að þetta gangi allt saman eftir þá verður að setja fjármuni í óarðbæru verkefnin. Það er óhjákvæmilegt. Það er enginn slíkur töframaður til að hann geti búið til innviðafélag sem tekur veggjöld sem duga ekki fyrir fjárfestingum og rekstri og það muni einhvern veginn ganga upp. Það er ekki hægt.

Síðan er það hitt, virðulegi forseti, að við verðum að ræða þennan samgöngusáttmála. Ef forminu er alveg fullnægt hér og það er nægjanlegt að setja í greinargerð að það sé til eitthvað sem heitir samgöngusáttmáli og þar sé fjárfesting upp á hundruð milljarða og það gefi öll þau leyfi sem hægt er til að halda áfram með slík verkefni þá er það eitt og það bara kemur í ljós en það er algerlega fráleitt að við fáum ekki að ræða samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Það er fráleitt og ég er búinn að bíða núna síðan í byrjun árs eftir sérstakri umræðu um samgöngur í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu. Það fæst ekki. Ég hef lagt fram fyrirspurnir um arðsemi þeirra verkefna sem eru undir samgöngusáttmálanum og ég hef gert athugasemdir við það við forseta vegna þess að svörin eru algerlega út í hött. Ráðherrann fer þá leið að vísa í skýrslur, m.a. enskar skýrslur upp á tugi síðna, sem svara reyndar ekki spurningunum, þær ágætu skýrslur, í stað þess að svara þeim fyrirspurnum sem voru í þessu um arðsemi einstakra verkefna í samgöngusáttmálanum. Þetta er stórmál, virðulegi forseti, því Alþingi Íslendinga er með eftirlitsvald gagnvart framkvæmdarvaldinu. Ef hæstv. ríkisstjórn ætlar að gera allt hvað hún getur til að koma í veg fyrir það að við ræðum þessi risamál og þessar risafjárhæðir og Alþingi Íslendinga lætur ríkisstjórnina komast upp með það þá erum við að skapa fordæmi sem við viljum ekki sjá fyrir endann á.

Ef ríkisstjórnin hyggst ekki ræða það, um hvaða önnur 300 milljarða verkefni ætlum við bara að segja: Heyrðu, þið sjáið bara um þetta og okkur er nokk sama þótt þetta sé ekki rætt og að við séum ekki að skoða þessi mál. Þetta eru 300 milljarðar, samgöngumál og við ræðum þetta ekki neitt. Ég ætla ekkert að fara í einstök mál hér hvað það varðar því að þetta er ekki í þessari samgönguáætlun en það sem ég mun gera og halda áfram með og er búinn að gera núna í öllu þessu frá því að þing kom saman er að ég mun gera hvað ég get og mun ekki hætta fyrr en við munum ræða þessi mál og skoða þessi mál. Þetta hefur bein áhrif á hagsmuni allra landsmanna og þetta eru fjármunir skattgreiðenda. Við hljótum að skoða forgangsröðun og verkefnaval og ég mun fylgja þessum málum eftir. Ég vek athygli á því ef hæstv. ríkisstjórn kemst upp með það að ræða þetta ekki, koma ekki með umræðu hér inn í þingsal og inn í þingnefndir hvað þetta varðar þá erum við að skapa fordæmi sem er mjög alvarlegt og er ekki í samræmi við það hlutverk sem okkur er falið. Því fylgir ábyrgð fyrir hv. þingmenn að vera með það hlutverk og við eigum að standa undir þeirri ábyrgð, virðulegi forseti.