157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:56]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður sagði að hann fengi ekki að ræða samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Mig langar því að spyrja hv. þingmann út í aðstæður sem mögulega gætu skapast, hvort hann nái utan um hvað myndi gerast. Aðstæðurnar eru þær að við erum í kosningabaráttu og einhverjir flokkar lofa því að setja Sundabraut númer eitt, tvö og þrjú, að nú þurfi borgarbúar ekki lengur að bíða eftir Sundabraut, hún verði sett í forgang. Þá velti ég fyrir mér þegar kannski sömu aðilar komast svo í ríkisstjórn, hvað gerist þá? Nú á þetta innviðafélag að vera svo sjálfstætt. Það má ekki segja því fyrir verkum og það virðist ekki heldur mega segja: Hérna er Sundabraut. Viljið þið taka þetta verkefni, annars ætlum við að setja það í sérstakt verkefni? Það virðist líka einhvern veginn verið búið að loka fyrir það. Ég er að reyna að ná utan um hvernig stjórnmálamenn geta staðið við sín loforð gagnvart sínum kjósendum um forgangsröðun því vissulega er hægt að setja í samgöngusáttmála eitthvað, en er þá eina leiðin að það sé bara eitt verkefni og annaðhvort taki þetta nýja innviðafélag það eða ekki? Mögulega verður stækkun Hvalfjarðarganga hagstæðari, meiri ábati af því heldur en af Sundabraut og þá vissulega myndi þetta nýja innviðafélag setja það í forgang. Þannig að spurningin er: Ef þetta fer óbreytt í gegn, ef þetta er svona, hvernig getum við staðið skil á því sem við lofuðum okkar kjósendum? Eða er ég að misskilja hvernig prógrammið er?