samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég verð að viðurkenna að ég gleymdi alveg að ræða Sundabraut í ræðunni minni áðan. En það er nú sorgarmál og menn einhvern veginn alltaf að fara af stað með sama málið aftur og aftur. Þetta er algerlega forgangsmál, brýnt mál, en einhverra hluta vegna geta menn aldrei lært af mistökunum og menn eru búnir að fara með það eins og það var fyrir 30 árum, aftur og aftur, lenda alltaf á sömu veggjunum en alltaf halda menn áfram í því í stað þess að horfast í augu við raunveruleikann og hanna mannvirkið í samræmi við að það nýtist sem best og verði í sem bestri sátt. En ég held að hv. þingmaður hafi ekki verið að spyrja um það. Við erum hér í rauninni á göngum þingsins að reyna að átta okkur á þessu svokallaða innviðafélagi. Hins vegar er það alveg ljóst að innviðafélagið verður þannig að það á að stjörnumerkja, eins og það heitir, einhverja hluti í samgönguáætlun og svo á innviðafélagið að meta það náttúrlega í tengslum við fjárfesta því það gerir ekki neitt nema það fái fjármögnun á verkefnunum og á þá að taka það sem því líst best á og sem hentar líka sinni forgangsröðun. Hv. þingmaður nefnir hér raunverulegt dæmi því að það eru held ég allir sammála um að Hvalfjarðargöngin séu einfaldari og arðbærari framkvæmd en Sundabraut. En svo má það vera að kjörnir fulltrúar séu kosnir út á það að byggja Sundabraut og telji að það sé meiri forgangur þótt það sé meiri arðsemi af Hvalfjarðargöngunum.
Virðulegur forseti. Svar mitt er einfaldlega þetta: Þetta áttum við að ræða áður en við fórum að ræða samgönguáætlun því að þessu innviðafélagi er falið gríðarstórt verkefni. Maður hefur það á tilfinningunni að það eigi bara að laga allt. Ég held að það muni ekki gerast og lýðræðisleg aðkoma er ekki tryggð með frumvarpinu í það minnsta og hefur ekkert verið rædd, hvorki í nefndinni og því síður í þingsal.