157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:00]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Það er nefnilega málið. Það er erfitt að ræða samgönguáætlun án þess að ræða innviðafélag samhliða. Í samgönguáætlun kemur fram að hringvegur um Kjalarnes kosti 6,3 milljarða. Ef þessi hringvegur færi inn í innviðafélagið, þ.e. ef innviðafélagið segir: Já, við erum svolítið spennt fyrir þessu, við getum tekið þetta að okkur, þá myndi losna um 6,3 milljarða innan samgönguáætlunar. Hins vegar, og það sem er ekkert talað um, er ef innviðafélagið segir t.d.: Nei, við viljum ekki fá Setbergsgöng, við viljum ekki fá göng undir Öxnadalsheiði eða undir Reynisfjall, þá losnar ekki um, þá fer það í hina áttina. Þá vantar pening inn í samgönguáætlun. Þannig að í raun og veru segir þetta okkur að það er ekkert að marka samgönguáætlun af því að þetta byggist allt á því hvað innviðafélagið ætlar að gera. Er þá ekki réttur skilningur að ef innviðafélagið vill ekki fara í þetta þá eru ekki til peningar?