157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:02]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Við erum búin að læra það, ekki í umfjöllun nefndarinnar heldur á göngunum, að Kjalarnes kæmi tæplega til greina vegna þess að það þarf að vera hjáleið og verkefnin þurfa alltaf að vera þannig að það sé annar valkostur, samanber Hvalfjarðargöng. Það er klárlega verkefni af því að það er hægt að keyra fyrir fjörðinn en það væri hæpið að finna hjáleið við Kjalarnes. Hins vegar erum við ekkert búin að ræða þetta. Það liggur alveg fyrir að jarðgöngin eru ekki fjármögnuð. Þetta er ekki fullfjármögnuð samgönguáætlun, alveg sama þótt forystumenn ríkisstjórnarinnar segi það aftur og aftur. Líka ef samgöngusáttmálinn, sem ég geri ráð fyrir eða alla vega er það túlkað þannig að hann sé partur af samgönguáætlun, þá er ekki búið að fjármagna 143 milljarða í veggjöld. Það er bara engin heimild fyrir neinu slíku svo tvö dæmi séu tekin.

En við eigum alveg eftir að fara í gegnum umræðuna um hvernig við ætlum að hafa þetta. Þetta á að vera einhvern veginn þannig að þingið á að afgreiða samgönguáætlun og stjörnumerkja einhver verkefni en innviðafélagið getur ekki tekið öll þau verkefni, þau verða að vera arðbær, þau verða að ganga upp. Til dæmis er það þannig, af því að hv. þingmaður dregur alveg rétta ályktun af þessu, bara t.d. Fljótagöng sem allir forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar eru búnir að lofa — hvar eru peningarnir í það? Gefum okkur að við klárum innviðafélagið eins og við skiljum það, fefum okkur að það fari af stað strax. Þá vantar 18,5 milljarða í Fljótagöng frá ríkinu, frá skattgreiðendum, þannig að við erum auðvitað bara svona að læra á leiðinni. En það liggur alveg fyrir að það er ótrúlegt að við höfum ekki byrjað að ræða innviðafélagið, klárað það og myndum þá átta okkur á því hvaða áhrif það hefði á samgönguáætlun. Við vitum það ekki.