samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Mér finnst hún mjög skiljanleg. Svo ég setji hv. þingmann aðeins inn í mína stöðu sem þingmaður í fjárlaganefnd: Við erum að fara yfir þetta og við erum búin að skrifa nefndarálit. Ef hv. þingmaður hefði spurt mig í gær um innviðafélagið þá væri svarið annað en í dag þar sem ég held, eftir að við höfum rætt við sérfræðinga í þessum málum, að þetta sé ekki eins og því er lýst í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar þar sem er talað um að taka þjónustugjöld fyrir hvert verkefni fyrir sig, að það megi ekki vera skattur og ef þetta eru þjónustugjöld þá þýði það einfaldlega að um leið og þú ert búinn að fá upp í kostnaðinn þá verði bara að hætta að innheimta. Þetta er meira í anda þess sem er hjá Landsneti, sem er sérstök lagaleg skilgreining og miðar að því að byggja upp eigið fé í félaginu. En það getur tekið nokkur verkefni í einu. Þannig skil ég þetta núna. Þá loksins áttar maður sig á þessu. Þetta er sérstakt samgöngukerfi sem er þá samkvæmt skilgreiningunni innan 150 km þannig að t.d. væri hægt að taka Sundabrautina og Hvalfjarðargöngin og jafnvel Melasveitina í einum pakka og það fjármagnað í einum pakka. Þá fer maður aðeins að skilja þetta. Allir umsagnaraðilar hafa skilið það þannig, af því að þetta er einhvers konar vafningur, að vafningarnir væru þannig að þú myndir greiða inn á Sundabrautina en værir að borga fyrir Fljótagöngin — ef hv. þingmaður var í nefndinni þegar umsagnaraðilar komu og sögðu að það gæti ekki gengið upp. En aðalatriðið er þetta: Við erum ekki búnir að fá — ég er að segja bara með öllum fyrirvörum að ég held að þetta sé svona. Þetta er samkvæmt nýjustu upplýsingum. Við verðum að mínu mati, ef við ætlum að vanda lagaumgjörð í þessu mikilvæga máli, að fara dýpra ofan í það.