157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:09]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið, þótt þakkirnar séu með fyrirvara um að frekari breytingar verði á eðli málsins. Að hluta til er það sannarlega bagalegt að svona mikil óvissa ríki um þetta fyrirkomulag þegar menn eru svo mjög að reiða sig á að miða við þetta fyrirkomulag til allrar framtíðar og sömuleiðis að vinna alla samgönguáætlunina út frá þessum atriðum. Maður vonar alla vega að það komist einhver skýrari mynd á þetta og þá getum við farið í þessa þinglegu vinnu. Úr því að við erum að ræða um samgönguáætlun og samgöngusáttmálann sömuleiðis þá hefði ég áhuga á því að vita, á meðan maður hefur rúm til þess hjá hv. þingmanni, hvernig Reykjavík og höfuðborgarsvæðið horfir við hv. þingmanni út frá þessari samgönguáætlun. Það ríkir auðvitað óvissa og hefur ríkt og það er alltaf tilfinning manns að töluvert minni vissa sé til staðar en maður myndi vilja með ýmsar þær stofnbrautaframkvæmdir sem vikið er að í samgönguáætlun og samgöngusáttmálanum. Hvernig speglast hagsmunir höfuðborgarsvæðisins í þessari samgönguáætlun að mati hv. þingmanns? Hefur hann áhyggjur af því að það verði áframhaldandi tafir á öllum þessum stofnbrautaframkvæmdum?