157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:10]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir. Fyrst varðandi það hvort þetta sé bagalegt. Þetta er miklu meira en bagalegt. Annaðhvort er það þannig að meiri hluti hv. fjárlaganefndar er að misskilja málið eða sérfræðingurinn sem við fengum í dag er að misskilja málið. Það fer ekki saman hljóð og mynd þarna. Við erum að klára hér lög, væntanlega, frá Alþingi í gríðarlega mikilvægu máli sem þessi óvissa er um.

Varðandi höfuðborgarsvæðið. Við erum ekkert að ræða höfuðborgarsvæðið. Við erum með einhvers konar innviðafélag, það er nú svolítið erfitt að skilgreina þessa blessuðu Betri samgöngur, en þetta er einhvers konar innviðafélag. Á blaðsíðu 102 í greinargerðinni er aðeins vikið að þessu. Þetta eru 300 milljarðar og menn ætla að ná einhverjum 50 milljörðum út úr gömlu skipulagi á Keldnalandinu til að fjármagna þetta og 143 milljörðum í veggjöld sem við erum ekkert farin að ræða og á reyndar að vera löngu búið að innheimta. Ég vil ræða þessi samgöngumannvirki sem þarna eru undir og við hljótum að gera það (Forseti hringir.) sem berum ábyrgð á þessum málum því að þetta er í eigu ríkisins og er þar af leiðandi í ábyrgð og borgað af skattgreiðendum. Ef við eigum ekki að ræða þetta, hver á þá að gera það? (Forseti hringir.) Hver á að taka ákvörðun í þessu máli ef það er ekki Alþingi Íslendinga?