157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:12]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og vildi koma aðeins inn í þessa umræðu um að gera verkefni samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sýnilegri í samgönguáætlun og þeim gögnum sem fyrir liggja um hana. Þetta voru ábendingar sem við fengum m.a. frá nefndarmönnum og ræddum í nefndinni og ég vildi bara vekja athygli á því að í samræmi við fyrri samgönguáætlun þá er framkvæmdataflan gerð sýnilegri í breytingartillögum með því að birta hana ekki bara í viðauka heldur inni í plagginu sjálfu. Í nefndarálitinu er líka lýsing á einstökum verkefnum til samræmis við lýsingar á þeim verkefnum sem eru í samgönguáætlun og voru í upphaflegri tillögu. Núna eru gögnin þá alla vega jafnfætis þannig að við þessu var brugðist. Það er alveg hægt að taka undir það með þingmanninum að stundum hefur verið fundið að því að það sé býsna mikil óreiða á upplýsingum um hver þessi verkefni eru og hvar þau standa. Mikilvægi málsins er meira en svo að við það megi una þannig að úr þessu hefur verið bætt til þess að mæta þessum sjónarmiðum.