samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Mjór er mikils vísir og það er gott að þetta sé komið í nefndarálit. Það er ekki það sama og að hafa það í þingsályktunartillögunni en ég bara fagna öllu því sem miðar að því að við séum að ræða þessa hluti. Ég held að ég sé ekki ósanngjarn þegar ég kalla eftir því að fá umræðu um þessi mál hér en ég ætla ekki að gera neitt annað en að hrósa hv. þingmanni og þeim þingmönnum sem að þessu standa fyrir að stíga þessi skref. Ég vil líka hvetja ráðherrann til dáða til að svara fyrirspurnum sem er beint til hans. Velviljaður hv. þingmaður rétti mér hér nefndarálitið og á bls. 14, sem ég held að við þurfum augljóslega að ræða, er t.d. borgarlína sem á að liggja í hverfum sem ég þekki mjög vel. Ég þekki þessar götur eins og lófann á mér og ég held að við þurfum aðeins að ræða það hvernig menn ætla að koma þessari borgarlínu þarna fyrir án þess að skerða verulega þá umferð sem er til staðar núna.
Ég hef frá því að ég kom inn á þing tekið upp samgöngumál Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins. Maður var nú skammaður fyrir það eitt að gera það, að voga mér að gera það. Það gerir það svo sem enginn lengur en hér erum við með miklar framkvæmdir og það væri áhugavert að vita hvort hv. þingmaður gæti sagt okkur svona frá hinum endanum varðandi veggjöldin og Keldnalandið. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta en það væri gott ef hann kæmi í annað andsvar og segði aðeins frá því hver umræðan í nefndinni hefur verið um þau (Forseti hringir.) og hvaða hugmyndir eru í gangi um það því ég get ekki annað en séð að Keldnalandið sé í ákveðnu uppnámi.