157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:17]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er alla vega gott að koma þessu til skila og ég deili því með þingmanninum að manni hefur stundum fundist lítið rætt um samgöngumál höfuðborgarsvæðisins þar sem þó flestir búa og mest gjöld af bílum og umferð falla til, sem er kannski bakbeinið í fjármögnun samgönguáætlunar sem nær auðvitað til landsins alls. Nú erum við með samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem markar tímamót. Það eru miklu fleiri og stærri verkefni sem eru komin á dagskrá. Síðast var verið að kynna Sæbrautarstokkinn sem er mikilvægt verkefni. Þar næst eða nálægt eru gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar. Allt hangir þetta saman og væri alveg efni í góða og reglulega umræðu, bæði í nefndum og hér í þingsal, og það mun ekki standa á þeim þingmanni sem hér stendur að taka þátt í henni.