samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þó að ekkert kæmi svarið og því síður spurning. Það má svo sem alveg. Ég nefndi það hér að það ætti að ræða veggjöldin upp á 143 milljarða og ég nefndi það líka að menn ætla að ná 50 milljörðum út úr Keldnalandinu. Ég heyrði það á nýkjörnum borgarstjóra að það á að endurskoða það skipulag, sem betur fer. En af því að hv. þingmaður nefndi Sæbrautarstokkinn þá er það nokkuð sem ég hef áhyggjur af. Ég hef áhyggjur af Sundabrautinni af mörgum ástæðum. Í fyrsta lagi held ég að hún muni ekki þjóna þeim markmiðum sem lagt er upp með, þ.e. að létta á almennri umferð, m.a. vegna Sæbrautarstokksins, það er svo lítil aukning umferðar þar. Við erum að fara í gríðarlega dýra fjárfestingu. Jú, vissulega mun, ég ætla ekki að gera lítið úr því, einhverjum aðreinum inn í stokkinn fækka, en það á ekki að fjölga akreinum neitt. Síðan þekkjum við það, báðir þingmenn í Reykjavík norður, hver viðhorfin eru bæði í Laugardalnum og í Grafarvoginum. Þegar menn voru að gera þessar áætlanir á sínum tíma var byggð bara með öðrum hætti og við vitum að það að fá Sundabrautina í gegnum hið svokallaða bíllausa hverfi t.d. í Grafarvoginum verður mjög erfitt. Við vitum líka og ég skil mjög vel íbúa í Laugardal sem benda á að hverfi þeirra sé troðfullt núna af bílum sem ættu að vera á Sæbrautinni en komast ekki þar fyrir. En ég þakka hv. þingmanni bæði fyrir að koma hingað í andsvar og fyrir að setja þetta inn í meirihlutaálitið. En betur má ef duga skal. Mér sýnist þetta vera einu umræðurnar um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu (Forseti hringir.) í samgönguáætlun og það er auðvitað ekki ásættanlegt.