157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:20]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Í fyrstu ræðu minni fór ég yfir stóru myndina og reyndi að ramma inn mál er varða framkvæmdaáætlunina annars vegar og langtímaáætlunina hins vegar, fjármögnun í gegnum innviðafélag og aðra fjármögnun ýmiss konar, innviðaskuld, viðhaldsskuld og þetta allt saman. Ég reyndi að ramma það inn í fyrstu ræðu minni og ég nefndi í þeirri ræðu hvernig ég ætlaði að skipuleggja mál mitt hér við þessa umræðu, jafn mikilvæg og hún nú er, því auðvitað erum við komin töluvert fram yfir lögbundinn tíma til að uppfæra samgönguáætlun. En það breytir því ekki að það er ekki hægt að réttlæta að kasta til hendinni og gera þetta allt saman einhvern veginn.

Mig langar í þessari ræðu að ræða samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins með áherslu á áhrif borgarlínu og tengd mál. Þegar samgöngusáttmálinn var undirritaður 26. september 2019 þá hugsa ég að ég hafi verið með fyrstu mönnum til að að reka hornin í þann gjörning sem virtist vera einhvers lags samhjálparaðgerð bæjar- og borgarstjóra hér á höfuðborgarsvæðinu til að framfylgja og framkvæma kosningaloforð Samfylkingarinnar í Reykjavík. Slík aðgerð kann ekki alltaf góðri lukku að stýra. Það sem hefur gerst síðan er að kostnaðaráætlanir samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins hafa beinlínis sprungið í loft upp. Það er ekki hægt að lýsa því með neinum öðrum hætti. Flestöll verkefni samgöngusáttmálans sem voru útlistuð 2019 hafa annaðhvort hækkað verulega í kostnaðarmati eða gjörbreyst í eðli sínu hvað varðar það sem áætlað er að framkvæma og gera.

Það er svo sem ekki óþekkt þegar kemur að samgönguframkvæmdum á Íslandi að svona verk vaxi í hafi. En ég held að það hafi aldrei gerst með viðlíka hætti og blasað hefur við okkur í tengslum við samgöngusáttmálann. Ef ég man rétt, að teknu tilliti til verðlagsuppfærslna, þá var uppfærslan sem gerð var 2023 eða 2024, ég man ekki alveg nákvæmlega, sennilega 2024, með þeim hætti, að mig minnir, að teknu tilliti til verðlagsþróunar, að þá var bætt við 192 milljörðum. Það er tala sem er með hreinum ólíkindum að ríkisstjórn þess tíma og bæjarstjórar og borgarstjóri höfuðborgarsveitarfélaganna hafi skrifað undir með bros á vör. Það vekur hjá manni ugg að fram undan sé einhvers lags færibandavinna við það að innleiða þau áform sem uppi eru í samgöngusáttmálanum sem ganga í grunninn öll út á að borgarlínan sé í forgangi.

Prófessor emerítus Ragnar Árnason fór fyrir hópi sem skrifaði prýðisgóða úttekt á þessu sem var kynnt fyrir nokkrum vikum síðan þar sem borgarlínuhlutinn, þegar reynt var að leggja mat á hann frístandandi, var með neikvæða arðsemi upp á 210 milljarða, 210.000 milljónir, og menn bara yppta öxlum og segja: Ja, samgöngusáttmálinn er með jákvæða arðsemi ef horft er á hann heildstætt. Hvað skyldi nú orsaka það? Það er auðvitað sú mikla arðsemi sem stofnbrautaframkvæmdirnar skila. Þar verður arðsemin til sem og í áformum um betri ljósastýringu og þar fram eftir götunum. Ég hef ekki verið í því að reka hornin í að það séu settir fjármunir í hjóla- og göngustíga. Þótt ég hafi dálítið skammað hv. framsögumann nefndarálits meiri hluta í fyrstu ræðu minni varðandi áherslu á virka ferðamáta þá er þeim býsna vel fyrir komið í raun.

Eftir stendur að framkvæmdir er tengjast virkum ferðamátum, hjólreiðum, göngustígum og þar fram eftir götunum eru í fínum takti. En þá eru eftir þessar flæðisaðgerðir, ljósastýring og þess háttar en manni sýnist vera lagður steinn í götu framfara í þeim efnum við öll tækifæri. Ég vona nú að sú breyting sem varð í borgarstjórn — þótt samsetning nýs meiri hluta veki auðvitað áhyggjur þá hef ég lúmskan grun um að það verði í öllu falli litið hratt til þess að umferðarflæði verði sett í forgang með bættri ljósastýringu. Þá stendur eftir hvað stóru þættina varðar, það eru stofnbrautaframkvæmdirnar annars vegar og borgarlínuframkvæmdirnar hins vegar, að þær eru metnar upp á sirka 42% af heildarframkvæmdahlutanum eins og kemur fram í greinargerð samgönguáætlunarinnar. Mér þykir sú talning reyndar leggja ýmsan kostnað er tengist borgarlínu á stofnbrautahlutann en látum það liggja milli hluta.

Það sem eftir stendur er að prófessor emerítus Ragnar Árnason og hans menn komast að þeirri niðurstöðu að borgarlínuhlutinn sé með neikvæða arðsemi upp á 210 milljarða. Apparatið sem var að reikna þetta út fyrir Betri samgöngur ohf. frekar en sveitarfélögin, ég man ekki hver verkkaupinn var, segir að arðsemin af heildarpakkanum sé jákvæð. Heyrðu, eigum við þá ekki bara að setja áhersluna á að gera það sem er raunverulega með jákvæða arðsemi, setja það í forgang? Leggjum meiri áherslu á stofnbrautaframkvæmdirnar. Framkvæmum þær með þeim hætti að umferðarflæði verði sem best og þannig munum við ná gríðarlega góðum árangri. Við munum ekki ná árangri í umferðarmálum höfuðborgarsvæðisins með því að þrengja að fjölskyldubílnum og atvinnubílum á götunum. Það er útilokað. Ég verð að lýsa yfir ánægju minni með að það eru býsna skýrar yfirlýsingar nýs borgarmeirihluta þess efnis að skipulag Suðurlandsbrautar verði tekið upp, því það er einhver brjálæðishugmynd sem komst þar í gegn og áfram á forsendum þessa verkefnis sem samgöngusáttmálinn er. Það var ekki hlustað í neinu á hagaðila við Suðurlandsbrautina; fasteignaeigendur, fyrirtækjaeigendur, þá sem þurfa að sækja sér þjónustu. Það var ekki hlustað á neinn, bara haldið áfram eins og kerfið, apparatið, væri með augnlokur á og sæi ekkert nema það að breyta Suðurlandsbrautinni í 1+1 í staðinn fyrir 2+2. Hver halda menn að áhrifin af þeirri aðgerð verði? Auðvitað verða áhrifin af þeirri aðgerð þau að umferð þrýstist út í íbúðahverfin. Það bara beinlínis getur ekkert annað gerst, þannig að ég er býsna ánægður með að það glitti í að þessi áform verði endurskoðuð sem, ef ég man rétt, voru samþykkt í borgarapparatinu korteri fyrir kosningar.

Það eru fleiri þættir sem verður að leyfa sér að gagnrýna, áform um brú yfir Fossvoginn sem hafa sprungið í loft upp hvað kostnaðaráætlun varðar. Sama er með Sæbrautarlausnina og stokkinn þar sem á einhverjum tímapunkti kostaði orðið 21,5 milljarða en var í upphaflega samningnum frá 2019 áætlaður, ef ég man rétt, 2,7 milljarðar, hartnær tíföldun í kostnaði. Svona meðferð á skattpeningum, opinberu fé, eignum ríkissjóðs, Keldnalandinu, áform um sérstaka gjaldtöku sem mun fyrst og fremst lenda á íbúum höfuðborgarsvæðisins en auðvitað líka á íbúum landsbyggðarinnar sem sækja höfuðborgina heim til að heimsækja sitt fólk eða sækja sér þjónustu, allt er þetta í lausu lofti enn þá. Enn þá hefur ekki verið sýnt á spilin með hvaða hætti stjórnvöld sjá fyrir sér að þetta verði útfært. Á meðan svo er er ekki hægt að klára þessa vinnu. Ég held að það skipti miklu máli að menn vindi sér strax í heildarendurskoðun þessa verks og menn geti beinlínis lagt línur fyrir haustið, þá þannig að við getum klárað samgönguáætlun hratt og vel á haustþinginu þegar þessir þættir liggja fyrir, (Forseti hringir.) því eins og þetta lítur út núna þá er það allt í lausu lofti. Það eina sem er öruggt er að skattar og gjöld á ökumenn og ökutæki halda áfram að hækka sem aldrei fyrr. (Forseti hringir.) Það er eitthvað sem Miðflokkurinn getur aldrei stutt við án þess að sjá til lands með hvaða hætti útfært verður.