157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:31]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég ætla aðeins að halda áfram þar sem frá var horfið í minni fyrri ræðu varðandi Vestmannaeyjar og ferjumálin. Núna hyggst meiri hluti samgöngunefndar beina því til hæstv. ráðherra að fram fari vinna við að gera ferjuáætlun. Af því tilefni fór ég í mitt þingmál, frumvarpið sem ég hef lagt fram hérna, held ég, sex eða sjö sinnum um svokallaðar þjóðferjuleiðir. Ég lagði þetta fyrst fram á þingi 2018 og hef lagt þetta fram á hverju þingi síðan sem ég hef verið hér innan dyra og lagði þetta líka fram í vetur. Ég leit yfir þetta fyrr í dag og kíkti á umsagnir sem hafa yfirleitt alltaf verið jákvæðar en sá að núna t.d. hefur þetta breyst örlítið frá því er áður var því nú er Vegagerðin, frú forseti, með jákvæða umsögn. Vegagerðin hefur ekki ávallt gefið jákvæða umsögn um þetta frumvarp, sett einhver spurningarmerki um skyldur og kostnað og fleira. En nú ber svo við að Vegagerðin veitti þessu frumvarpi jákvæða umsögn að þessu sinni og finnst þetta vera sjálfsagt mál. Þetta er auðvitað, frú forseti, nákvæmlega sama málið í raun og veru og ferjuáætlun, þ.e. áætlun um ferjur, hvar eigi að vera ferjur, hvernig þær gangi, með hvaða tíðni, stærð o.s.frv. og hugsanlegt viðhald, viðgerðir og varaferjur og allt þetta. Þjóðferjuleiðirnar eru bara nákvæmlega það sama. Þær gegna sama hlutverki í raun og veru og þjóðvegir. Þar er Vegagerðinni skylt að halda þeim opnum og ryðja á vissum tímum, mismikið eftir álagi, íbúafjölda og umferð. Þetta er bara nákvæmlega það sama. Ef fáir íbúar búa á einhverri eyju sem ríkið sinnir ferjusiglingum til þá fer auðvitað tíðnin og þjónustuhæðin eftir því hversu margir íbúar búa þar og hversu tíðar samgöngur þurfa að vera vegna ferðamanna og annað, þannig að þetta er bara nákvæmlega eins og þjóðvegir, nákvæmlega eins. Ég gaf þessu nafnið þjóðferjuleiðir.

Þetta kom til af því að umboðsmaður Alþingis fékk til sín kæru og felldi álit sitt árið 2007 í máli farþega Herjólfs sem var ósáttur við hækkun á fargjöldum. Hann kærði það til umboðsmanns sem skilaði svo sínu áliti og sagði í álitinu að Alþingi hafi ekki litið svo á að ríkinu væri skylt að standa að rekstri á ferjum með sama hætti og uppbyggingu og viðhaldi þjóðvega. Þetta er mergurinn málsins, frú forseti. Ríkinu er þetta ekki skylt og með þessu frumvarpi mínu er ég að gera ríkinu skylt að gera áætlun, skilgreina hversu oft eigi að fara til Eyja, hversu oft á dag eða á ári og hversu stórt skip o.s.frv. Þetta á auðvitað við um Grímsey, Hrísey og Flatey og þessar eyjar sem eru byggðar, þannig að þetta er bara nákvæmlega það sama og meiri hluti samgöngunefndar er nú raunverulega að biðja um, að það sé nauðsynlegt að gera áætlun um ferjur. Auðvitað veit ég, frú forseti, að þarna er verið að meina kannski fyrst og fremst áætlun um endurnýjun á þessum skipum en það er auðvitað hluti af þessu líka, viðhald á þjóðvegum, að endurnýja vegina og byggja þá upp, malbika þá og endurnýja brýr o.s.frv., bara nákvæmlega eins og með ferjurnar. Því má segja að þessi ferjuáætlun sé í raun og veru inni í þessu frumvarpi mínu, þannig að ef það yrði samþykkt hér á þingi þá væri raunverulega þessum markmiðum með ferjuáætlun náð strax með því.

Ég vil endurtaka að það kom jákvæð umsögn frá Vegagerðinni að þessu sinni. Auðvitað er þetta einhver skylda á ríkissjóð en það er það nú þegar. Þeir hafa talið sér skylt að halda uppi þessum siglingum. Hvað varðar gjaldtöku á þessum leiðum er auðvitað kannski framtíðarmúsík að skilgreina hvað íbúum sem ákváðu að búa úti á þessum eyjum beri að greiða. Í Vestmannaeyjum hefur lengi verið talað um að íbúar þar eigi að borga bara samsvarandi og ef um veg væri að ræða, þ.e. ef þeir myndu keyra þjóðveg þessa vegalengd sem um ræðir. Þeir hafa þó kyngt því hingað til að borga margfalt hærri upphæð fyrir þetta. Þetta er raunverulega — fyrir utan kannski Vaðlaheiðargöngin en þú kemst aðra leið þar ef þú vilt ekki borga gjaldið — eina veggjaldið sem fólk greiðir á Íslandi í dag, með þessum ferjum til að komast heim og að heiman.

Að síðustu sagði umboðsmaður þarna árið 2007 að Herjólfur hefði hlutverk sem væri að nokkru marki eðlislíkt því hlutverki sem vegir hefðu almennt í samgöngum hér á landi. Skýrara getur það ekki verið, frú forseti, og ég á nú von á því að þingmenn Suðurkjördæmis — sem ég hef nú boðið að vera með mér á þessu máli en hafa nú ekki í stórum hópum flykkst á það — ef ég legg þetta fram að nýju í haust, sem ég tel mig þurfa að gera, flykkist á það með mér vegna þess að þetta er auðvitað til að bæta og þetta er ekki bara fyrir Suðurkjördæmi heldur fyrir allt landið.

Ég ætlaði í þessari seinni ræðu, fyrir utan þessi ferjumál sem ég held ég hafi nú verið búinn að tala töluvert mikið um, að ræða líka fleira, t.d. einkennileg vinnubrögð hér á landi. Ég hef rætt við ýmsa verktaka og framkvæmdamenn og þeir benda á það að við erum með ákveðin — og maður sér það sjálfur líka þegar maður ferðast um landið og sér verk sem eru í gangi, t.d. þegar við erum að gera mislæg gatnamót eða brýr yfir vegi þá er þetta allt saman mjög umfangsmikið og tekur óratíma. Þessu þarf öllu að slá upp og það þarf að veita umferðinni fram hjá mánuðum og jafnvel árum saman á meðan verið er að steypa og láta steypuna þorna og síðan er umferð hleypt á viðkomandi mannvirki eftir kannski 2–3 ár. Þetta tekur allt of langan tíma og er auðvitað rándýrt. Menn sem þekkja til svona framkvæmda erlendis hafa bent mér á að þetta sé gert þar með forsteyptum einingum. Ég skil reyndar alls ekki af hverju við förum ekki ódýrari leiðir, ég tala nú ekki um í minni háttar verkum, að nýta okkur forsteyptar einingar þegar verið er að gera göng undir vegi o.s.frv. í staðinn fyrir að vera að rjúfa samgönguæðar vítt og breitt um byggðir landsins meðan á framkvæmdum stendur.

Annað sem ég ætla að benda á þessu líkt og þessu skylt er að þegar verið er að smíða brú yfir læk eða á þá þarf alltaf að hanna brúna upp á nýtt. Í hvert sinn sem ný brú er smíðuð, þótt lækurinn sé svipaður að stærð og umhverfið kannski svipað, þá þarf alltaf að teikna hana upp á nýtt og það þarf að búa raunverulega til nýtt mót þegar verið er að slá upp fyrir næstu brú þannig að brúarsmiðir landsins hafa þurft í raun og veru að smíða nýja brú eiginlega frá fyrstu hugmynd í hvert sinn sem þeir byggja nýja. Ég vildi bara koma þessu að í þessari ræðu. Ég held að við þingmenn, og tala nú ekki um ríkisstjórn og hæstv. ráðherra, eigum að leggja svolítið í púkkið til að gera svona hluti framkvæmdalegs eðlis svolítið einfaldari og reyna að vera svolítið sneggri að tileinka okkur vinnubrögð sem víðast hvar annars staðar eru notuð en við erum hérna í einhverjum fornaldaraðferðum.