samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég ætla hér, þó að ég sé ekki með gögnin mín með mér, að fara aðeins yfir með hvaða hætti samgönguáætlunin sem nú blasir við okkur er afturhlaðin. Maður hefur oft séð þetta í gegnum tíðina en þetta er meira áberandi núna, sýnist mér, heldur en oft áður.
Eins og ég lýsti í fyrstu ræðu minni ætla ég að fara yfir hvert svæði Vegagerðarinnar fyrir sig með þetta í huga. Ég ætla að byrja á vestursvæðinu sem nær frá Hvalfjarðarbotni um Vesturlandið allt og innifelur Vestfirðina. Þarna er, svo snyrtilega sé sagt frá, ekki feitan gölt að flá hvað nýframkvæmdir varðar á framkvæmdaáætlunarhluta áætlunarinnar, sem eru fyrstu fimm árin. Ef frá er talinn frágangur í Gufudalssveit upp á 3 milljarða þá er mjög fátt sem þarna er undir sem áform eru uppi um að koma af stað á næstu fimm árum. Ég verð að viðurkenna að eftir þá miklu gagnrýni sem kom fram á þá samgönguáætlun sem fyrri ríkisstjórn lagði fram hér undir lok líftíma síns og þá snautlegu meðhöndlun sem Vesturland fékk í þeirri áætlun þá hefði ég nú einhvern veginn reiknað með því að ráðherra málaflokksins, sem er þingmaður svæðisins, hefði alla vega reynt að sýnast, bæta eilítið við á fimm ára tímabili áætlunarinnar, sem sagt fyrstu fimm árunum af 15, því við megum ekki gleyma því að það eru ekki nema nokkur ár síðan, ég held að það sé bara búið að leggja fram eina samgönguáætlun í millitíðinni, samgönguáætlun var breytt með þeim hætti að hún fór frá því að vera 12 ár, fjögurra ára framkvæmdaáætlun og síðan tvö fjögurra ára tímabil í framhaldinu í að vera 15, þannig að það var teygt mjög hressilega á. Það var næstum því þannig að það væri bætt við fjórða tímabilinu miðað við upphaflegu nálgunina. Raunin er auðvitað sú að sá hluti sem er aftastur á síðasta tímabili langtímaáætlunarinnar er svona í besta falli til minnis en auðvitað hugsaður til að friðþægja, reyna að róa svæði með það fyrir augum að það styttist nú í framkvæmdir á því svæði þar sem þeirra er óskað.
Staðreyndin hefur hins vegar verið sú að það eru gerðar gríðarlegar breytingar í framlagningu samgönguáætlana sem átt hafa sér stað síðan þá á þessu þriðja tímabili. Það vekur mér alveg sérstakan ugg gagnvart mínu gamla svæði, hafandi verið þingmaður Norðvesturkjördæmis í tvö kjörtímabil áður en ég færði mig yfir í Kragann, Suðvesturkjördæmi, þá vil ég líta til með mínu gamla svæði. Með svona eiginlega öskrandi afturhlaðna heildaráætlun gagnvart Vesturlandi þá er ekki annað hægt en að gera athugasemdir við það. Það var rætt hér þegar samgönguáætlun var lögð fram síðast að það yrði litið til með því að fjárveitingar úr tengivegasjóði myndu að einhverju marki lempa þau áhrif sem birtast í því hversu lítið er áætlað af svona, til að tala á almennum nótum, alvöruframkvæmdum á Vesturlandi næstu fimm árin. Ég sá þess ekki merki í nefndaráliti meiri hluta hv. umhverfis- og samgöngunefndar að það væru nein áform uppi eða nein skilaboð til Vegagerðarinnar eða ráðherra þess efnis að til þess yrði litið. Ég tek því fagnandi ef ég verð leiðréttur hvað þetta varðar en ég man ekki eftir því úr yfirlestri mínum á nefndaráliti meiri hlutans, þannig að eftir stendur að Vesturlandið er skilið hér um bil alveg út undan. Ég fagna því þó, af því að ég hef nú haldið því til haga við allar umræður um samgönguáætlanir sem lagðar hafa verið fram síðan ég kom inn á þing, hvort sem þær hafa verið kláraðar eða ekki, að Uxahryggjavegur er gríðarlega mikilvægur upp á ferðamannaleið til að tengja saman Suðurland og Vesturland og tappa af ákveðnu flæði þar á milli og það eru komnar fjárveitingar í þann vegarkafla, áætlaðar á öðru og þriðja áætlunartímabili, en obbinn af þeim er á þriðja áætlunartímabili þannig að mann grunar að hugur fylgi ekki alveg máli.
Ég vildi í þessari ræðu minni halda til haga þeirri stöðu sem blasir við gagnvart Vesturlandi. Hún er ekki glæsileg og (Forseti hringir.) með ráðherra málaflokksins sem fulltrúa þess kjördæmis og þá gagnrýni sem kom fram hér á síðasta kjörtímabili, (Forseti hringir.) þá reiknaði ég með ívið skárri merkjasendingu en hér blasir við.