samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Þingmaður úr Norðausturkjördæmi á kannski ekki að tala mikið fyrir hönd Vestlendinga í sambandi við samgönguáætlun. Ég tek bara undir þessi sjónarmið. Vestlendingar hafa aldeilis látið heyra í sér á undanförnum árum. (BergÓ: … Norðausturkjördæmi.) Já, ég get haldið áfram með það. Miklar og háværar umsagnir hafa borist af Vesturlandi á síðustu árum sem snúa að samgöngumálum og samgönguáætlun. Það held ég að öllum sé ljóst. Maður tók vel eftir því á síðasta kjörtímabili, þegar sá sem hér stendur sat í umhverfis- og samgöngunefnd, að Vestlendingum fannst að þeir fengju lítið.
Ég hef haft áhuga á þessu með ferðamannaleiðirnar og Uxahryggjaleið og vil taka undir að það sé mikilvægt verkefni að tengja saman Vesturland og Suðurland með mjög þægilegum hætti. Síðan eru það Kaldidalur og Lundarreykjadalur, báðar leiðir sem hægt er að fara í framhaldinu. Það tengjast inn spennandi leiðir.
Svo er það Kjalvegur, sem tengir Norðvesturkjördæmi og Suðurkjördæmi, þessi gamla leið milli Norðurlands og Suðurlands sem ég held að sé gríðarlega stór og mikilvæg gagnvart ferðaþjónustunni. Að því er varðar 25.000 bílaleigubíla sem dreifa ferðamönnum um landið — það er fyrst og fremst verið að selja flug og bíl í íslenskri ferðaþjónustu — þá vil ég spyrja hv. þingmann, hv. fyrrverandi þingmann Norðvesturkjördæmis, hvort hann hafi velt þeim fyrir sér varðandi möguleika sem tengjast Kjalvegi.