samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir skemmtilegt andsvar. Draugar fortíðar poppa upp. Ég hef nefnilega velt vegalagningu um Kjalveg býsna mikið fyrir mér frá því í mínu fyrra lífi sem aðstoðarmaður samgönguráðherra 2003–2006. Þá voru mikil áform um vegalagningu þarna eða á — hvað hét nú aftur hin leiðin sem Halldór Blöndal heitinn talaði fyrir? (Gripið fram í.) Stórisandur. Þetta voru vangaveltur þess tíma.
Ég man að þáverandi yfirmaður minn, þáverandi hæstv. samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson heitinn, nálgaðist vegalagningu um Kjalveg út frá því að við yrðum að gæta þess að við ættum bara eitt svona svæði ósnortið. Þarna yrði að fara varlega. Þannig að ég hef verið þeirrar skoðunar síðan.
Mér þykir sjálfsagt að skoða bætta vegalagningu um Kjalveg, kannski á forsendum ferðamannavegar. En ég hef ekki alveg sannfærst um að við ættum að byggja upp veg sem höndlar þungaflutninga um stæði Kjalvegar. Ég man nú bara að við feðgarnir keyrðum um Kjalveg fyrir sennilega þremur árum á gömlum Land Cruiser. Stefnuljósin héngu öll út á snúrum og vírum eftir ökuferðina, slíkt var þvottabrettið alla leið. Þannig að það blasir við að bæta þarf veginn þarna umtalsvert.
Nú er ég að hugsa upphátt svo að því sé haldið til haga, en sem sérstakur áhugamaður um þessar ferðamannaleiðir vildi ég skoða það að Kjalvegur yrði með settlegum hætti gerður með bundnu slitlagi þannig að ferðamenn og aðrir sem vilja fara um þetta magnaða svæði geti farið þangað án þess að afskrifa bílinn sinn um 30%.