157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:53]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Þessi ártöl, þegar hv. þingmaður var aðstoðarmaður samgönguráðherra 2003–2006, eru svolítið skemmtileg vegna þess að árið 2005 eða 2006 var gerð skýrsla sem hét örugglega „Norðurvegur“. Jóhannes heitinn í Bónus, Kjarnafæði, KEA og fleiri aðilar komu að þeirri skýrslugerð og þeirri hugmyndavinnu. Sá sem hér stendur skrifaði ferðaþjónustukaflann í þá skýrslu, um Kjalveg.

Þá, fyrir rúmum 20 árum, man ég að voru 4.500 bílaleigubílar í ferðaþjónustunni. Þeir eru orðnir 25.000 í dag, sem sýnir hvað umsvifin og raunar allar forsendur á bak við þetta hafa breyst hratt. Ferðaþjónusta var ákveðið hlutfall í mikilvægi vegarins, ekkert endilega svo stórt hlutfall þá en hefur breyst mikið. Nú er ferðaþjónusta eiginlega forsendan fyrir veginum. Það væru þessir 25.000 bílaleigubílar í skammtímaleigu. 64–65% allra ferðamanna leigja sér bílaleigubíl. Íslensk ferðaþjónusta er flug og bíll eins og Arnarflug auglýsti í gamla daga.

Ég hef sjálfur verið með mál í þinginu sem snýr að uppbyggingu Kjalvegar og er sammála þessu. Ég hef ekki verið að leitast eftir þungaflutningum heldur fyrst og fremst því að tengja saman svæðin. Það gæti verið hluti af þjóðhagslegum ábata að nýta ferðaþjónustu og innviði sem tengjast ferðaþjónustu betur og lengja tímabilin. Þetta gæti verið opið sjö eða átta mánuði á ári.

Síðan hlýtur Landsvirkjun að fara að huga að því að setja bundið slitlag á sinn ágæta veg norðan heiða. Svo vitum við að í Kerlingarfjöllum er áhugi á því að bæta veginn sunnan frá. Þá verður ekkert svo stór hluti sem þarf að gera meira með, kannski að byggja hann aðeins upp þannig að hann henti bílaumferð.