157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:55]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni seinna andsvar. Ég reyni að ramma svar mitt inn út frá forsendum ferðamannavega. Það má vera misminni en ég held að ferðamannavegir hafi fyrst komið inn sem sérstakur hluti samgönguáætlunar þegar hún var samþykkt árið 2005 frekar en árið 2004. Menn leiðrétta mig ef þetta er misminni.

Þetta er nefnilega gríðarlega mikilvægt atriði að huga að. Þetta eru atriði sem dreifa umferð og ferðamönnum og auðvelda dreifingu þeirra milli svæða, eins og Uxahryggjavegur sem ég nefndi í ræðu minni áðan. Þetta gefur ferðaþjónustunni og þeim ferðamönnum sem landið sækja heim tækifæri til að sjá meira. Auðvitað óska ég Suðurlandi áframhaldandi heilla í tengslum við fjölda ferðamanna en ég held að það væri margra hluta vegna gott að gera þeim auðveldara fyrir sem hingað koma á forsendum flugs og bíls. Auðvitað færu hópferðabifreiðar um þessa vegi sömuleiðis, hvort sem það væri um Uxahryggjaveg í Kaldadal, um Kjalveg eða aðra slíka. Ég held að þetta myndi bæta nýtingu innviða mjög mikið.

Af því að hv. þingmaður veltir sérstaklega upp mögulegum sjö eða átta mánaða opnunartíma varðandi Kjalveg, og Axlir, þá er það vorið, sumarið og haustið. Meginþungi ferðamannatímans myndi njóta þessa. Ég væri mjög áhugasamur um að skoða þetta áfram.

Ég á einmitt þessa skýrslu sem hv. þingmaður nefndi. Hvað hét hún aftur? (Gripið fram í.) Norðurvegur, akkúrat. Ég rak augun í hana í bókakassa, eða skýrslukassa, hjá mér fyrir ekki mjög löngu. (Gripið fram í.) Já, ég mun lesa ferðaþjónustukaflann aftur. (Forseti hringir.) Ég held að þetta sé hlutur sem við ættum að ræða. Ef þessi samgönguáætlun klárast ekki núna getur þetta vonandi komið til umræðu þegar hún verður lögð fram í haust.