157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[23:25]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ása Berglind Hjálmarsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir sína ræðu. Þetta er auðvitað ákveðið þema sem er búið að vera í umræðunni hér, að Austurland sé fjársvelt. Ég hef nú verið hérna, meðan ég hef verið að hlusta á góðar umræður í dag, aðeins að glöggva mig betur á þessu og taka svolítið saman eftir svæðum það sem er verið að setja annars vegar í nýframkvæmdir og hins vegar í hafnir og flugvelli. Það sem kemur þar í ljós er að af þeim fimm svæðum sem Vegagerðin skiptir framkvæmdunum upp í þá er Austurland næstefst með fjárframlag á eftir Suðurlandi. Þá er Ölfusárbrú inni í því hvað varðar Suðurland. Ef hún er tekin út, þar sem hún á að fara inn í innviðafélagið, trónir Austurland á toppnum þannig að ég held að fólk þurfi kannski bara aðeins að horfa í þessar tölur áður en það fer að koma hingað með svona fullyrðingar, leyfi ég mér að segja.

Varðandi Öxi þá er þetta auðvitað fjárframlag sem munar um. Það var okkar skilningur að það væri ekki þörf á þessu hringtorgi nú þegar Fjarðarheiðargöng eru ekki alveg á næsta leiti þannig að það lá beint við að setja þetta fjármagn í Öxi og þar af leiðandi verður hægt að fara í tæplega 40% af þeirri framkvæmd nú á tíma aðgerðaáætlunarinnar. Eftir standa á öðru tímabili samgönguáætlunar rúm 60% af þeirri framkvæmd þannig að Öxi verður kláruð fyrir 2035, sem mér finnst bara mjög gott. En eins og við í meiri hlutanum tökum skýrt fram í nefndarálitinu þá er mikill vilji fyrir því að setja meira fjármagn í Öxi, komi til svigrúm í samgönguáætlun ef eitthvert verkefni sem þar er fjármagnað fer yfir í innviðafélagið. Það er fullur vilji okkar og þess vegna settum við það í þessi drög að þessari breytingartillögutöflu.