157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[23:27]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni og framsögumanni nefndarálits meiri hlutans fyrir að koma upp í andsvar við mig. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki heyrt allar ræðurnar hér í dag og átta mig þar af leiðandi ekki á því hvort hér sé eitthvert þema í því að tala sérstaklega fyrir Austurland og að Austurland sé fjársvelt. Ég minni bara á það sem ég var að fara með hér í ræðustóli, bréf sem okkur þingmönnum barst seinni partinn í dag frá sveitarstjórn Múlaþings, bara svo því sé til haga haldið. Sjálf er ég þingmaður Suðvesturkjördæmis og mér finnst mjög áhugaverðar upplýsingar sem hv. þingmaður kemur hér með um hvernig þetta skiptist niður á landsvæði og ég efast ekki um að Austfirðingar verði ánægðir með að sjá þessa útreikninga hv. þingmanns. Sjálf minnist ég þess að hafa reglulega spurt hér samgönguráðherra í gegnum tíðina einmitt um þessa skiptingu nýframkvæmda eftir svæðum. Þar hefur auðvitað komið í ljós að höfuðborgarsvæðið hefur verið verulega fjársvelt á síðustu árum og þess vegna var samgöngusáttmálinn svo mikilvægur og mikilvægur í því ljósi að ná vonandi fé í alvöruframkvæmdir hér á höfuðborgarsvæðinu.

En, virðulegur forseti, ég er ekki viss um að íbúum á Austurlandi finnist samt 2035 — var það ekki ártalið sem hv. þingmaður nefndi? — vera ásættanlegt þegar kemur að þessum fjallvegi. Ég leyfi mér að efast um það eftir heimsókn mína þarna. En ef hv. þingmaður getur fundið fjármagn annars staðar til að setja í þetta þá efast ég ekki um að þingmaðurinn myndi gleðja þá sem þarna búa og búa við þetta samgönguleysi.

Virðulegur forseti. Ég skil alveg að ef það á ekki að nota fjármuni einhvers staðar þá séu þeir settir í eitthvað annað en ég held að stóra málið hér og punkturinn sem ég var að reyna að velta upp í ljósi þeirrar umræðu sem hefur verið hér í dag sé hvort við séum raunverulega komin á þann stað að það sé skynsamlegra að setja ákveðið fé í fjórðunginn, á ákveðin svæði og leyfa heimamönnum að hafa meiri áhrif á það hvert það fé fer. Það er í rauninni það sem við erum búin að gera með samgöngusáttmálanum. Ég veit að sumir þingmenn gagnrýna það. (Forseti hringir.) Ég skil ekki betur en að hugmyndin um innviðafélag sé nákvæmlega að gera það. Það er svolítið verið að taka þingið út úr því og setja fjármagn í ákveðnar framkvæmdir. (Forseti hringir.) Þá spyr ég: Hvað er eftir? Er það sá pottur sem snýst um að færa eitthvert hringtorg yfir í einhver 40% af einhverjum fjallvegi?