157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[23:29]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ása Berglind Hjálmarsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, þetta eru bara fínustu vangaveltur um hversu mikið sveitarfélögin ættu að koma að þessari ákvarðanatöku og í nefndaráliti okkar má glögglega sjá að þegar kemur t.d. að tengivegapotti og viðhaldinu þá eru það ákveðin tilmæli okkar að vera í auknu samráði við sveitarfélögin um forgangsröðun þeirra verkefna sem eiga að renna inn í sveitarfélög á hverjum stað. Ég veit að mörg sveitarfélög hafa líka verið að gera mjög ítarlegt svæðisskipulag þar sem þau eru sjálf sum hver búin að forgangsraða þeim samgönguúrbótum sem þau myndu vilja sjá. Ég tel bara mjög eðlilegt að í vinnu við samgönguáætlun, hvort sem hún er í undirbúningi inni í ráðuneyti eða þegar hún kemur til kasta þingsins, sé það haft til hliðsjónar.

Varðandi Austurland þá myndi maður auðvitað vilja sjá þennan veg gerast hraðar og það sama má segja um mjög mikilvægar framkvæmdir úti um allt land. Það er alls staðar hægt að finna einhvers konar framkvæmd sem er ígildi Öxi og bara á þessu svæði nefni ég t.d. Suðurfjarðaveg sem er mjög hættulegur vegur sem skólabörn keyra um á hverjum degi. Hann er sannarlega á áætlun en það væri mjög gott að geta flýtt honum líka. Sama segi ég um minn landshluta á Suðurlandi, Reykjanesbraut og margar hafnir og svona mætti lengi telja. En við erum að reyna að forgangsraða og fjárframlag er að skila sér til allra landshluta og ég held að það hafi bara tekist alveg ágætlega.