157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[23:31]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðara andsvar. Ég veit vel að það er mjög víða skortur á fjármagni í innviði og vegaframkvæmdir, mjög víða um landið, þar sem er brýn þörf bara út af hættu, mjög brýn þörf út af almannahagsmunum og svo annars staðar út af umferðartöfum og öðru slíku. Ég heyri að hv. þingmaður er, ja, hvað eigum við að segja, orðinn örlítið raunveruleikatengdari eftir að hafa þurft að fást við þetta mikla viðfangsefni, samgönguáætlun, því að eins og ég sagði í fyrri ræðu minni þá voru hér höfð uppi stór orð þegar samgönguáætlun var kynnt og í fyrri umræðu um samgönguáætlun fóru þingmenn mikinn og töluðu um að nú ætti að ræsa vélarnar og taka til hendinni og fyrri ríkisstjórn hefði ekki gert neitt og innviðaskuldin væri svo mikil. (Gripið fram í.) Nei. Ég held nefnilega að hv. þingmaður og margir fleiri sem hafa verið í þessum verkefnum núna hafi áttað sig á því hversu mikið umfangið er og bara þegar horft er á það sem við erum með í fjármálaáætlun í dag, sem liggur fyrir þinginu, er þar verið að draga úr fjárframlögum til samgöngumála. (Gripið fram í.) Jú, það er verið að draga úr fjárframlögum til samgöngumála milli ára innan þessarar fjármálaáætlunar. Þegar horft er svo til þeirra áfalla sem við fengumst við í tíð síðustu ríkisstjórnar þá fóru um 500 milljarðar í það og auðvitað hefðum við viljað miklu frekar að þeir fjármunir hefðu farið í vegaframkvæmdir.

Þetta snýst allt um forgangsröðun. Hér liggur fyrir forgangsröðun ríkisstjórnarinnar og ég heyri að hv. þingmaður er sáttur og ánægður með hana og það er gott og gilt. Ég efast samt um að allir verði það. Það er ekki svoleiðis. Ég hef sjálf ýmislegt við hana að athuga. En stóra málið er auðvitað að það vantar meira fjármagn og jafnvel þó að við ræðum þessa samgönguáætlun sem hér liggur fyrir þá er hún ekki fyllilega fjármögnuð þannig að þetta er óskalisti. En við skulum vona að ríkisstjórninni takist að finna til fjármagn (Forseti hringir.) þannig að hægt verði að framkvæma í samræmi við þann lista.