157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[23:34]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu um þessa samgönguáætlun. Mér fannst hv. þingmaður setja hlutina í svolítið nýstárlegt samhengi þegar hún talar um samkomulag sveitarfélaga á Austurlandi varðandi það hvaða verkefni ætti að vera næst á dagskrá, Fjarðarheiðargöng, sem síðan hæstv. innviðaráðherra ákveður að slá miklu aftar á listann og taka önnur verkefni fram yfir, þ.e. jarðgöng, Fljótagöng. Í því samhengi, frú forseti, að líkja því við samkomulag sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í dag þá er það auðvitað í fyllsta máta eðlilegt að sveitarfélög á ákveðnu landsvæði komi sér saman í stað þess að fara í hár saman yfir öllum þeim framkvæmdum og óskalistum sem þau vilja forgangsraða gagnvart ríkinu. En þarna á Austurlandi ákveður ríkisvaldið í raun og veru að hunsa bara þetta samkomulag, hunsa það. Auðvitað voru það mikil vonbrigði fyrir Seyðfirðinga sérstaklega og jafnvel fleiri þarna í nágrenninu að þetta skyldi blásið aftarlega á listann. Ég vil spyrja hv. þingmann út í það hvort þetta sé sambærilegt, að svona samkomulag sé að engu hafandi, bara eins og höfuðborgarsáttmálinn. Gæti þá næsti ráðherra bara blásið það af eins og ekkert væri og gert þetta einhvern veginn allt öðruvísi og haft allt öðruvísi forgangsröðun? Svo ætlaði ég að spyrja hv. þingmann í seinna andsvari kannski um innviðafélag og fleira, en látum þetta duga.