samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég held að stutta svarið við spurningunni hvort ráðherra geti bara blásið það af, sé: Já. Það er nákvæmlega það sem gerðist núna. Nú þekki ég það kannski ekki í hnotskurn en ég hygg að öll svona samkomulög sem gerð eru við sveitarfélög séu alltaf með einhvers konar fyrirvara um að fjármagn fáist á fjárlögum eða eitthvað slíkt. Þess vegna er alveg eðlilegt að fólk velti þessu fyrir sér.
Hér erum við að tala um þingsályktunartillögu um samgönguáætlun frá 2026–2040 og svo erum við að tala um aðgerðaáætlun sem er til 2030. Ég skil alveg að þeir sem eru á seinni hluta tímabilsins með einhverjar framkvæmdir hugsi: Verður einhvern tímann af þessu? Því meira að segja þeir sem voru komnir fyrstir í röðina og voru þar í töluverðan tíma eru núna komnir í þriðja sæti — voru það ekki þriðju jarðgöngin samkvæmt röðinni núna? Þetta dregur auðvitað úr trúverðugleika. Það dregur úr trúverðugleika ríkisins gagnvart sveitarfélögunum þegar farið er í svona breytingar. Ég held að það sé alveg á hreinu. Það er ekki gott.
Kannski var ég ekki alveg nógu skýr með þetta samhengi sem ég var að reyna að setja þetta í. Ég er hlynnt samgöngusáttmála á höfuðborgarsvæðinu og held að það hafi verið mjög mikilvægt að sveitarfélögin og ríkið hafi komið sér saman um hvar mikilvægar framkvæmdir liggja. Ég veit að það var líka svo hjá Samtökum sveitarfélaga á Austurlandi, þau voru búin að koma sér saman um ákveðna forgangsröðun. En svo er auðvitað núna verið að tala um allt annað svæði á landinu með Fjarðagöngum.
Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort það væri skynsamlegra að horfa bara í samgönguáætlun á það að ákveðnir fjármunir séu að fara á einhver ákveðin svæði og þá sé meira hægt að vinna það með sveitarfélögum. En þegar það er klippt algjörlega á milli þá dregur það úr ákveðnum trúverðugleika gagnvart ríkinu og setur sveitarstjórnarfulltrúa, (Forseti hringir.) kjörna fulltrúa á svæðunum, í mikinn vanda sem hafa barist af miklu kappi fyrir ákveðnum framkvæmdum (Forseti hringir.) og jafnvel náð samningum þar að lútandi.