samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessi svör. Ég ætlaði að spyrja í seinni spurningu um það sem varðar svar hv. þingmanns; þetta dregur auðvitað fyrst og fremst að mínu mati úr hvata sveitarfélaganna til að gera á milli sín samkomulag um forgang verkefna. Það dregur auðvitað úr þeim hvata að sveitarfélög geri það bara yfirleitt ef ríkisvaldið síðan stendur ekki við sinn hluta samkomulagsins eða virðir ekki vilja sveitarfélaganna sem þau hafa komið sér saman um.
Í öðru lagi ætla ég að spyrja hv. þingmann um innviðafélagið. Nú er það ekki komið á dagskrá, það er ekki á dagskrá núna akkúrat. En er það rétt skilið hjá mér og að mati hv. þingmanns að innviðafélagið, ef það verður að raunveruleika, verði raunverulega á sjálfstýringu? Félagið fari á sjálfstýringu og ráði því sjálft í raun og veru til hvaða framkvæmda það tekur, hvernig það forgangsraðar framkvæmdum af þeim framkvæmdum sem ríkið merkir svo, það geti þá valið. Þannig að við sem kjörnir fulltrúar höfum kannski ekkert um það að segja þegar þetta er farið frá okkur. Hv. þingmaður vill kannski koma örlítið inn á það.
Loks vil ég nýta tækifærið, af því að ég veit að hv. þingmaður, sem er reyndar þingmaður Suðvesturkjördæmis, hefur góð tengsl við Eyjar, og spyrja hvað henni finnist um lausnir ríkisstjórnarinnar í samgönguvanda Vestmannaeyja. Þær eru fólgnar í því að búa til verkefnahóp og gera einhvers konar ferjuáætlun um endurnýjun á ferjum. Nú var ég á samgöngufundi í Eyjum í vikunni og ég held að niðurstaða þess fundar hafi verið í einu orði sagt vonbrigði. Það voru engar lausnir. (Forseti hringir.) Það var vinnuhópur, ferjuáætlun. Það var ekkert fleira.