samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka aftur andsvarið og ætla að byrja á þessu síðasta varðandi Eyjar. Ég hefði gjarnan viljað geta verið líka á þessum fundi en ég er þó búin að heyra fréttir af honum og veit að þetta voru mikil vonbrigði. Ég fór aðeins yfir það í fyrri ræðu minni hér, ég var að nefna sérstaklega Austfirði og Vestmannaeyjar í samhengi hlutanna vegna þess að það hefðu verið hækkaðir skattar og sérstaklega á fyrirtæki sem væru staðsett þarna og því var jafnframt lofað að þetta fjármagn ætti að fara í frekari uppbyggingu innviða og í vegaframkvæmdir. Ég held að það geti allir sagt sér það að svo virðist ekki vera.
Við höfum horft á versta vetur og vor í samgöngum til Eyja núna. Það er auðvitað röð ákveðinna atburða sem hefur verið mjög óheppileg, með bilunum í Herjólfi og svo aðstæðum í höfninni. En ég hef skilið það sem svo að hér séu að koma mjög færir sérfræðingar sem eru að gera einhvers konar úttekt og muni þar af leiðandi koma með einhverjar ráðleggingar í kjölfarið.
Og hvar er fjallað um það í samgönguáætlun? Hvernig á að takast á við það þegar það koma einhverjar ráðleggingar um hvað á að gera? Búa til verkefnahóp? Verkefnahópur dýpkar ekki höfnina. Verkefnahópurinn fer ekki í þær framkvæmdir sem nauðsynlegar eru til þess að höfnin geti verið opin lengur og meira. Ég gagnrýndi það vissulega, því það er mjög mikilvægt að finna lausnir, að þær er ekki að finna í þessari samgönguáætlun, það er alveg ljóst.
Við þurfum þar af leiðandi að finna einhverjar aðrar leiðir til að finna það fjármagn þannig að hægt verði að tryggja það að þessi mikilvæga og bara eina samgöngubót í samgöngum við Vestmannaeyjar, Landeyjahöfn, virki og að skip geti siglt þar inn með öruggum hætti og nægilega tíðum þannig að hægt sé að skilgreina þetta sem raunverulegan þjóðveg milli lands og Eyja.
Hvað innviðafélagið varðar þá skulum við ræða það hér, held ég, á morgun eða í næstu viku. En já, ég fékk nú ágætisskýringar á innviðafélaginu í dag þannig að það er aðeins að skýrast fyrir mér hvernig þetta á að virka. Ég held að hugmyndafræðin geti verið góð. Ég er hlynnt því að við förum þessa leið (Forseti hringir.) en það eru ekki peningar til að framkvæma allt sem þarna stendur og miðað við lestur nefndarálits meiri hlutans (Forseti hringir.) þá skýrir það engan veginn út hvernig þetta á að vinnast. Við þurfum betri og lengri og mun meiri tíma í að ræða það.