Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Sá sem hér stendur hitti á dögunum mann sem vildi ræða við mig um störf þingsins. Honum fannst enginn bragur vera á störfum þingsins. Hann kvaðst vera hægri maður og hann væri alveg viss um hvernig hann myndi haga atkvæði sínu í haust. Vissulega mun ég segja já vegna þess að mig langar að sjá hvað er í boði. Fyrir mér er þetta svo einfalt, sagði maðurinn. Ég vil sjá hvað er í boði til þess að geta tekið upplýsta ákvörðun. Öðruvísi get ég ekki tekið upplýsta ákvörðun nema ég sjái hvað er raunverulega í boði.
Ég fór að hugsa um þetta. Þetta er kannski einfaldlega svona einfalt vegna þess að við erum með jái í haust að sjá hvað er og verður í boði. Öðruvísi fáum við ekki staðreyndirnar á borðið. Það er enginn möguleiki á því. Við fáum ekki staðreyndirnar á borðið nema við sjáum hvað er í boði. Hann sagðist hafa kosið alltaf sama flokkinn allt sitt líf og ætlaði sennilega að halda því áfram en hann vildi ekki haga orðum sínum eins og margir þingmenn sem hann hefði kosið og þyrla upp moldviðri um þetta einfalda mál sem væri að kjósa um hvað er í boði í haust.
Ég fór að hugsa þetta og einfaldaði þetta enn frekar og hugsaði með mér: Ég hef allt mitt líf viljað vita meira, vita meira í dag en í gær. Ég hef allt mitt líf sem fréttamaður sóst eftir meiri upplýsingum en minni. Ég hef aldrei óttast þessar upplýsingar vegna þess að ég hef viljað miðla þeim til þjóðarinnar. Vita meira í dag en í gær. Okkur er kennt þetta í skólunum, upp öll skólastigin, að vita meira í dag en í gær og sjá hvað er í boði í lífinu. Hinn kosturinn er að vilja ekki vita meira. Hinn kosturinn er að vilja ekki sjá hvað er í boði. Hvers konar kostur er það, frú forseti? Hvers konar kostur er það?