157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

Störf þingsins.

[10:36]
Horfa

Andrea Rut Pálsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Sem fulltrúi ungrar kynslóðar sé ég hversu margir upplifa drauminn um eigið heimili verða stöðugt fjarlægari. Það er á ábyrgð okkar hér á Alþingi að vinna að lausnum sem skila raunverulegum árangri, ekki eftir tíu eða tuttugu ár heldur strax. Tími loforða er liðinn því fjöldi ungs fólks bíður eftir því að komast í eigið húsnæði. Núverandi ríkisstjórn hefur gripið til aðgerða til að snúa þessari áratugaþróun við. Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur dregið úr skattalegum hvötum til að nota íbúðarhúsnæði sem fjárfestingu til leigustarfsemi og tekið mikilvægt skref til að bæta réttindi leigjenda. Það er mikilvægt að fagna hverju skrefi sem tekið er til að bregðast við þessu ófremdarástandi en við megum ekki sofna á verðinum á meðan þúsundir ungra fjölskyldna búa við húsnæðisóöryggi og skort. Ég vek þess vegna athygli á frumkvæði og nálgun Flokks fólksins í uppbyggingu nýrra íbúðahverfa. Hún felst í því að innviðafélög styðji við uppbyggingu nýrra hverfa þar sem hagkvæmt húsnæði er reist í bland við annað húsnæði í samstarfi við óhagnaðardrifin húsnæðisfélög. Lagt var upp með þessa leið að frumkvæði Flokks fólksins í fráfarandi borgarstjórn, í fyrirhugaðri stóruppbyggingu í Úlfarsárdal. Með stuðningi sveitarfélaga getum við flýtt uppbyggingu húsnæðis á viðráðanlegu verði. Fyrir þau sem hafa verið föst á leigumarkaði árum saman, fyrir ungt fólk sem sér ekki fram á að eignast sitt eigið heimili og fyrir fjölskyldur sem glíma við síhækkandi húsnæðiskostnað er tíminn dýrmætur.