157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

Störf þingsins.

[10:38]
Horfa

Sigurður Helgi Pálmason (Flf):

Virðulegi forseti. Undanfarna daga hefur Alþingi fjallað um eitt mikilvægasta innviðamál þessa kjörtímabils, samgönguáætlun. Samgöngur skipta alla landsmenn máli; þær tengja saman byggðir, skapa atvinnu, auka öryggi og tryggja að fólk geti sótt vinnu, nám og þjónustu óháð búsetu. Það sem hefur staðið upp úr þessari umræðu er hversu málefnaleg hún hefur verið. Umhverfis- og samgöngunefnd bárust 143 umsagnir og fjöldi sveitarfélaga, hagsmunasamtaka og sérfræðinga kom fyrir nefndina. Hér hefur því verið um að ræða eitt stærsta og umfangsmesta mál þingsins á þessu kjörtímabili. Þrátt fyrir það hefur umræðan bæði í nefnd og hér í þingsal einkennst af yfirvegun, virðingu og málefnalegum sjónarmiðum. Þingmenn hafa eðlilega mismunandi áherslur en markmiðið hefur verið sameiginlegt; að bæta samgöngur fyrir landsmenn. Það er ánægjulegt að sjá að þegar rætt er um mál sem varðar alla þjóðina, hvort sem um er að ræða vegi, hafnir, flugvelli, almenningssamgöngur eða öryggi í samgöngum, þá getum við átt efnislega umræðu um lausnir og framtíðarsýn. Í áætluninni er gert ráð fyrir að tæplega 1.010 milljörðum kr. verði varið til samgöngumála fram til ársins 2040. Þar af fara 582 milljarðar til vegakerfisins. Á fyrstu fimm árunum áætlunarinnar, árin 2026–2030, er gert ráð fyrir framkvæmdum upp á rúman 361 milljarð kr., þar af tæpa 173 milljarða í vegaframkvæmdir. Þetta er fjárfesting sem mun hafa áhrif á líf fólks um land allt.

Ég vona að sú virðing, fagmennska og sá samstarfsandi sem einkennt hefur umræðuna um samgönguþáttinn verði leiðarljós í störfum okkar.