Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Já, aðeins meira um samgönguáætlun en eins og hv. þm. Sigurður Helgi Pálmason kom inn á hérna áðan hafa síðustu tvo daga átt sér stað umræður um nefndarálit meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar um samgönguáætlun til 15 ára og aðgerðaáætlun til fimm ára. Mig langar að þakka þeim þingmönnum sem tóku til máls fyrir málefnalegar og góðar umræður sem voru líka bara mjög skemmtilegar á köflum. Umræðurnar í þingsal endurspegla að miklu leyti umsagnir sem nefndin fjallaði um og þá birtingarmynd, sem er mjög skýr, að það er gríðarleg þörf á mikilvægum úrbótum um allt land. Það er líka ljóst að við tæklum ekki margumtalaða innviðaskuld í einni atrennu en við erum að byrja með krafti með sérstakri áherslu á aukið viðhald vegakerfisins. Þau kaflaskil sem ríkisstjórnin er að boða í samgöngumálum á Íslandi með stofnun innviðafélags voru líka stór hluti af umræðunni sem er skiljanlegt. Það er tilhlökkunarefni að fara í enn ítarlegri umræður um innviðafélagið þegar málið verður tekið fyrir, vonandi síðar í dag.
En mig langar að nýta tækifærið til að leiðrétta rangfærslur sem hefur ítrekað verið haldið fram hér í ræðustólnum, að Norðausturkjördæmi sé í fjársvelti í aðgerðaáætluninni og hún sé afturþung þegar kemur að því landsvæði. Múlaþing var líka með harðorða bókun þess efnis þar sem sagði m.a., með leyfi forseta, að Austurland væri áfram skilgreint sem afgangsstærð í samgöngubótum ríkisins. Þetta er ekki rétt, frú forseti. Ef tölur eru skoðaðar á tíma fimm ára aðgerðaáætlunar og horft til nýframkvæmda á vegum, höfnum og flugvöllum kemur í ljós að af fimm svæðum sem Vegagerðin skilgreinir þá er Austursvæðið með næstmesta framlagið á eftir Suðurlandi. Ef Ölfusárbrú sem fer í innviðafélagið er tekin út þá trónir Austurland á toppnum. Mér finnst mikilvægt að þetta komi fram hérna en ítreka annars þakkir mínar til þingmanna fyrir góða og málefnalega umræðu um samgönguáætlun.