Störf þingsins.
Frú forseti. Í morgun afgreiddum við úr hv. allsherjar- og menntamálanefnd lagafrumvarp um brottfararstöð til 3. umræðu. Við meðferð málsins eftir 2. umræðu í nefndinni gerðum við tillögur um breytingar sem varða annars vegar lýsingu á skilyrðum sem gerð eru til vistarvera sem ætlaðar eru fjölskyldum með börn og hins vegar varðandi skýrslu sem gerð er tillaga um að hæstv. dómsmálaráðherra skili Alþingi að liðnum 12 mánuðum frá þeirri dagsetningu þegar brottfararstöð tekur til starfa. Báðar þessar tillögur eru runnar undan rifjum minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar, þ.e. að tillaga um þær kröfur sem gerðar verða til vistarvera fjölskyldna með börn er samhljóða breytingartillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í hv. allsherjar- og menntamálanefnd í nefndaráliti þeirra við 2. umræðu málsins en þeir kölluðu aftur tillögu sína og hún kom því ekki til afgreiðslu eftir 2. umræðu.
Tillaga sú sem við leggjum fram um skýrslu ráðherra er runnin undan rifjum fulltrúa Framsóknarflokksins í hv. allsherjar- og menntamálanefnd sem hann lagði fram við 2. umræðu málsins. Tillagan var felld í atkvæðagreiðslu en tillagan innihélt jafnframt önnur atriði sem ekki eru tekin upp í tillögu allsherjar- og menntamálanefndar.
Eins og ég hef áður sagt hér í þessum stól hefur öll hv. allsherjar- og menntamálanefnd lagt sig fram um að sníða af þessu frumvarpi agnúa sem við höfum talið á því vera. Okkur í meiri hluta nefndarinnar var því ljúft og skylt að taka undir með 1. og 2. minni hluta hvað þessar breytingartillögur varðar. Með þessum breytingum er komið til móts við mikilvæg sjónarmið.
Frú forseti. Það er von mín og trú að afar sjaldan muni koma til þess að fjölskyldur með börn verði vistaðar í brottfararstöð og við höfum unnið málið þannig í nefndinni að önnur og vægari úrræði þurfa að hafa verið reynd áður en til þess kemur, auk þess sem strangt mat þarf að fara fram á nauðsyn þess að vista barn í brottfararstöð, auk þess sem færri tilvik munu gilda um það hvenær megi vista þar barn. Þá eru og tímamörk vistunar barna skýrt afmörkuð og mun skemmri en vistun fullorðinna. Lýsing á vistarverum sem fjölskyldum eru ætlaðar í breytingartillögum nefndarinnar er mikilvæg svo dregið sé eins og kostur er úr íþyngjandi aðstæðum sem börn eru sett í. Um skýrslu ráðherra til Alþingis þarf ekki að hafa mörg orð en í skýrslunni eru tiltekin mikilvæg atriði sem varða starfsemi brottfararstöðvar, svo sem um valdbeitingu og fjölda fjölskyldna með börn sem vistaðar verða á brottfararstöð á fyrsta starfsári hennar.