Störf þingsins.
Frú forseti. Evrópusambandið á engar auðlindir. Ég endurtek: Evrópusambandið á engar auðlindir. Það ætlar ekki að eignast auðlindir Íslands. Þetta stef hefur verið dálítið viðkvæðið í umræðunni undanfarið og mér finnst ástæða til að árétta þetta því hvernig í ósköpunum ætti það að samræmast hagsmunum Evrópusambandsins að hrifsa til sín auðlindir Íslands? Ég vil leggja áherslu á það við vini mína hér á þingi og vil ég beina orðum mínum sérstaklega til þeirra sem aðhyllast samvinnuhugsjónina að Evrópusambandið er að mörgu leyti stærsta og fallegasta samvinnufélag heims þar sem hagsmunir aðildarríkjanna eru í forgrunni og þar sem sjálfstæði og fullveldi eru leiðarstefið. En skyldurnar eru sömuleiðis ríkar og það þekkjum við vel sem stoltur aðili að Evrópska efnahagssvæðinu. Við hægri menn vil ég segja að nú er tími til að standa með frjálsum viðskiptum á tímum tollastríða og uppgangs stórvelda sem vilja reisa viðskiptamúra. Skoðanasystkini Sjálfstæðisflokksins úti um alla Evrópu vita þetta vel. Það er ekki til sá frjálslyndi hægri flokkur nokkurs staðar í Evrópu sem geldur varhuga við Evrópusambandsaðild síns ríkis og þetta vita félagar Sjálfstæðismanna í Høyre í Noregi einkar vel. Við Miðflokkinn vil ég segja að ég er viss um að Miðflokksmenn myndu eignast fulltrúa á Evrópuþinginu ef til aðildar Íslands kæmi og eflaust myndu þeir eignast marga góða vini þar. (Gripið fram í.) Ég held að með Miðflokksmenn gætu jafnvel haft mjög góð áhrif á þá vegna þess að þrátt fyrir allt eru þeir hjartahlýir og mér þykir vænt um þá. Ég vil að lokum þakka þingheimi fyrir að standa með Evrópska efnahagssvæðinu. (Forseti hringir.) Hér eru tækifæri fram undan. Við höfum engu að tapa. Og hvað sem öðru líður, ef við segðum já í ágúst, (Forseti hringir.) yrðum við þegar upp er staðið öflugri bandamaður innan EES. Við höfum engu að tapa.