157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

Störf þingsins.

[10:47]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Tökum eftir hvert öðru og látum vita þegar fólk gerir góða hluti. Nóg er af neikvæðni og hnútukasti í samfélaginu.

Frú forseti. Manni hlýnar um hjartarætur þegar maður sér hversu miklu máli þingmenn skipta forseta þegar þeir yfirgefa hér salinn. Þetta er raunverulegt hjá forseta og til eftirbreytni. Að taka eftir fólki og hrósa því fyrir góða þætti í þeirra gjörðum og fari er eitthvað sem kostar ekkert og gleður þann sem lætur vita og gleður þann sem fær að vita. Þetta er hægt að gera úti um allt. Sumir fara í gegnum lífið hálf ósýnilegir; það er ekki tekið eftir þeim og það er ekki gott. Hrósum afgreiðslufólki fyrir góða þjónustu. Hrósum náunganum sem tekur auka skref til að hjálpa til, benda á eða laga. Það verkefni sem ég sem skólamaður hef í gegnum tíðina fengið mest viðbrögð við er svokallað hrósverkefni. Þá hef ég fengið nemendur til að skrifa eina til tvær jákvæðar setningar um bekkjarfélagana. Ég hef tekið það saman og látið síðan hvern og einn fá setningar um sjálfan sig; jákvæðar, uppbyggilegar og einlægar setningar sem byggjast á einhverjum raunveruleika. Þetta hefur valdið því að ég hef fengið ótal símtöl frá foreldrum sem hengja þessi blöð upp á vegg og þegar eitthvað bjátar á er gott að kíkja á þetta. Ég sé að tíminn er að verða búinn, frú forseti, en ég held að það sé gott fyrir samfélagið allt að hlusta á það sem ég er að fara að segja hérna áfram. Það skiptir máli hvað er sagt og hvernig það er sagt. (Forseti hringir.) Við getum tekið dæmið sem ég nefndi við nemendur, maður getur sagt: Flott klipping eða flottir skór. Er það betra eða verra en: Þú ert góður vinur eða þú ert góður hlustandi? Þetta skiptir máli og það verður að vera innstæða fyrir því sem maður segir. (Forseti hringir.) En ég heyri á bjölluhljómi að tíminn er búinn. Ég læt staðar numið í bili en munum bara í sumar: Tökum okkur á. Fylgjumst með samfélaginu, tökum eftir fólki í kringum okkur og látum það vita fyrir hvað það er að gera góða hluti. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )