157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

Störf þingsins.

[10:50]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Nú er umræðu um samgönguáætlun að ljúka á næstu klukkutímum. Ég vil vekja athygli þingheims og þjóðar á því að við erum ekki að ræða stóru málin sem skattgreiðendur bera ábyrgð á í tengslum við þessa samgönguáætlun. Við erum ekki að ræða Sundabraut en það verkefni er því miður ekki á góðum stað. Við erum ekki að ræða samgöngusáttmálann og reyndar eru verkefni hans ekki tilgreind í samgönguáætlun. Í samgöngusáttmálanum er gert ráð fyrir að setja gjöld á vegfarendur upp á 143 milljarða. Það hefur ekki verið rætt. Þá á líka að fjármagna þetta með hinu svokallaða Keldnalandi sem kjósendur höfnuðu algjörlega í síðustu borgarstjórnarkosningum. Þar eiga að vera 50 milljarðar.

Virðulegi forseti. Það skiptir okkur máli hvernig samgöngumannvirki verða í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu. Menn eru t.d. að setja inn Sæbrautarstokk sem mun ekki leysa þann vanda sem hann á að leysa og hann mun kosta tugi milljarða króna. Það þýðir það líka, virðulegi forseti, að Sundabrautin mun ekki að ná þeim markmiðum sem henni er ætlað að ná, fyrir utan það að legan skapar mikla óánægju. Spurningum í tengslum við samgöngusáttmálann hefur ekki verið svarað. Ég vil nota tækifærið og þakka virðulegum forseta fyrir að senda svör sem voru alls ófullnægjandi aftur til baka framkvæmdarvaldsins og segja því að gera betur. Hafi forseti þakkir fyrir. Við erum með innviðafélag sem á að leysa allra handa vanda, virðulegi forseti, en það er augljóst að meiri hluti nefndarinnar hefur misskilið það mál. Við hefðum átt að ræða það áður en við ræðum samgönguáætlun. (Forseti hringir.) Ég vek athygli á því að samgönguáætlun er ekki fjármögnuð. Það er ekki gert ráð fyrir neinu sem heitið getur jarðgöng. Hér er verið að lofa jarðgöngum út um allar trissur (Forseti hringir.) en það er ljóst að það er ekki hægt að leggja jarðgöng þar sem er óarðbært að leggja jarðgöng án þess að leggja fram fjármuni (Forseti hringir.) og þeir eru ekki í samgönguáætlun. Það er alvarlegt, virðulegur forseti, að við séum að klára þessa umræðu án þess að ræða langstærstu málin í samgöngum þjóðarinnar.