Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Jarðamál eru lykilauðlindamál hverrar þjóðar. Jarðir fela í sér náttúru, ræktarland og þeim fylgja verðmætar auðlindir eins og vatn, heitt og kalt, og jarðefni. Það hver á jarðir og hvernig þær eru nýttar er því risastórt þjóðaröryggismál. Það er risastórt efnahagsmál og það er líka risastórt byggðamál. Á þingi Landbúnaðarháskóla Íslands í gær fór fram umræða um skýrslu um stöðu jarðamála. Þar kom margt áhugavert fram, m.a. að einungis 40% lögbýla á Íslandi eru í ábúð og einungis hluti þeirra er í landbúnaði. Þetta er risastórt mál fyrir okkur sem viljum sjá upprisu fjölskyldubúsins, sókn í landbúnaði og að Ísland sé að hugsa með þeim hætti núna þegar þurrkar eru algengari, vatnsskortur er algengari og ræktarland okkar mun augljóslega verða verðmætara og verðmætara.
Annað mál skiptir máli í þessu samhengi og það er eignarhald þeirra auðlinda sem fylgja jörðum. Þegar Landsvirkjun var stofnuð var verið að kaupa til baka vatnsréttindi frá erlendum aðilum svo við gætum átt þessar auðlindir en eftir að við innleiddum EES-samninginn var það gert með þeim hætti að það er galopið fyrir jarðakaup og fyrir þessar auðlindir sem með þeim fylgja. Á meðan annars staðar á Norðurlöndunum er miklu skýrari rammi um nýtingu ræktarlands, nýtingu jarða og annað sem skapar ákveðnar takmarkanir í auðlindasamhengi sömuleiðis.
Virðulegi forseti. Ég sá þennan vanda skýrt þegar ég var orkumálastjóri og hef talað lengi fyrir breytingum og lagt fram þingsályktunartillögu hér sem felur í sér að fara í þá vinnu sem háskólinn kallar eftir, sem Lagastofnun Háskóla Íslands hefur kallað eftir, Bændasamtökin hafa kallað eftir og mig langar til að hvetja hæstv. ríkisstjórn til að samþykkja þá þingsályktunartillögu. (Forseti hringir.) Það heyrist stundum að þetta sé ekki nógu stór vandi en við þurfum að hugsa um hvað megi vera margar jarðir í erlendri eigu og auðlindir í erlendri eigu eftir 10 ár, eftir 20 ár eða eftir 30 ár. (Forseti hringir.) Viljum við að börnin okkar segi söguna af því hvernig við misstum þessar auðlindir frá okkur? Ég segi nei og ég vil ítreka að það fyrir auðkýfinga að kaupa hér land er eins og að kaupa prins póló. (Forseti hringir.) Förum því í þessa vinnu, Ísland á það skilið og framtíðarkynslóðir sömuleiðis.
(ÞSv: Forseti hefur verið óvenju umburðarlyndi gagnvart ræðutímanum þennan morguninn en biður samt hv. þingmenn að ganga ekki á lagið.)