Störf þingsins.
Frú forseti. Mörg Evrópulönd hafa brennt sig illa á allt of rúmum reglum um ríkisborgararétt til erlendra ríkisborgara á síðustu árum og áratugum. Á Íslandi hafa þessar reglur heldur verið að rýmka á 21. öld á meðan möguleikum okkar til að svipta menn ríkisborgararétti hefur ekki fjölgað. Árlegur meðalfjöldi veittra ríkisborgararétta hefur stóraukist, verið um 600–700 manns á síðustu árum og hann heldur enn áfram að aukast. Árið 2025 var þessi fjöldi 1.067 sem fengu ríkisborgararétt hér á landi, sem virðist vera nýtt met. Í fréttum er sagt frá 290% aukningu af umsóknum til Útlendingastofnunar á síðustu fimm árum. Svona gengur þetta ekki. Vestræn ríki hafa verið að taka til gagngerrar endurskoðunar þetta örlæti sitt á ríkisborgararéttinn og við verðum að gera það líka, það er löngu tímabært.
Við í Miðflokknum höfum lagt fram, eða öllu heldur sent inn til skráningar, þingsályktunartillögu um breytingar á veitingu íslensks ríkisborgararéttar til að annars vegar takmarka til muna veitingu ríkisborgararéttar og hafa mun betri stjórn á honum. Þar felur tillagan í sér að búsetuskilyrði verði hert úr almennt sjö árum í tíu ár. Norðurlandabúar þurfi sjö ára búsetu og önnur tímaskilyrði verði lengd. Undanþáguákvæðið falli brott, sem segir að flóttamaður eða einstaklingur sem hefur fengið hér dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna geti fengið ríkisborgararétt eftir fimm ára búsetu. Þetta er sérregla sem lagt er til að afnumin verði þannig að þessi hópur falli bara undir almennu skilyrðin. Það er samfélagspróf um sögu Íslands, íslenska menningu, réttindi og skyldur, stjórnmál á Íslandi, íslensk þjóðfélagsgildi, alvöru samfélagspróf, íslenskukröfur hertar úr A2, sem er nú hálfgerður brandari, í B2 eða C1, endurskoða ferli Alþingis, taka það til umræðu, skoða hvort fólk þurfi að afsala sér öðrum ríkisborgararétti við að fá íslenskan ríkisborgararétt, skoða sömuleiðis möguleika til að svipta menn ríkisborgararétti af illri nauðsyn og almennt að umsögnum fækki verulega. Þetta eru tillögurnar í megindráttum.
Virðulegur forseti. Ég tek fram að eitt er auðvitað að erlendir ríkisborgarar (Forseti hringir.) hafi hér dvalarleyfi og sum þeirra eru ótímabundin. Eitthvað allt annað og mun stærra mál er ríkisborgararétturinn. Hann er heilagur réttur okkar Íslendinga og ég vil að hann verði það áfram. En ef við lögum þetta ekki (Forseti hringir.) þá erum við að grafa undan honum.