Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Við ræðum samgönguáætlun 2026–2040 í þinginu þessa dagana. Þegar við ræðum samgöngumálin erum við raunar að ræða undirstöðu atvinnulífsins, undirstöðu samfélagsins. Við erum að ræða sjávarútveg sem þarf að koma afurðum sínum hratt og örugglega á markað. Við erum að ræða ferðaþjónustu sem byggist á því að gestir geti ferðast um landið með öruggum hætti. Við erum að ræða landbúnað, iðnað, verslun, þjónustu, flutninga og nýsköpun. Allar þessar greinar þurfa trausta innviði til að geta dafnað. Það er því mikilvægt að við lítum ekki á samgönguframkvæmdir sem kostnað sem helst eigi að fresta. Þær eru fjárfesting, fjárfesting í öryggi, framleiðni, byggðafestu og framtíðartekjum þjóðarinnar. Þegar við bætum vegi, styttum leiðir, styrkjum flugvelli, byggjum upp hafnir, ráðumst í jarðgöng, þar sem samfélagslegur og efnahagslegur ávinningur er skýr, þá erum við að skapa verðmæti. Ferðatími styttist, flutningskostnaður lækkar, rekstraröryggi fyrirtækja eykst og samkeppnishæfni landshluta batnar. Fólk fær aukið svigrúm til að sækja vinnu, þjónustu og menntun yfir stærri svæði, atvinnusvæði stækka og byggðir tengjast betur saman. Þetta eru raunveruleg áhrif sem skipta máli í daglegu lífi fólks. Samgöngukerfin okkar eru mikilvægir grunninnviðir. Þau eru forsenda þess að fólk geti búið þar sem það vill búa, fyrirtæki geti vaxið þar sem tækifærin eru og landsmenn allir geti notið sambærilegs aðgengis að þjónustu, atvinnu, menntun og heilbrigðisþjónustu. Án öruggra og greiðra samgangna verða búsetuskilyrði lakari, þjónusta dýrari og tækifæri atvinnulífsins færri.