157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

Störf þingsins.

[11:04]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Eins og frægt er hefur þetta þing samþykkt að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Mér finnst ég greina það nokkuð mjög, fyrst hér innan húss og jafnvel utan húss líka, að frasinn „treystum þjóðinni“ verður kannski helsta haldreipi þessarar ríkisstjórnar sem fer í þessa vegferð til að hengja út óhreinan þvott Viðreisnar; málið eina, aðild að Evrópusambandinu, sem utanríkisráðherra hefur haft að marki frá því að hún stofnaði þennan flokk sinn, Viðreisn. Nú er svo komið að þegar ríkisstjórnin sjálf kemur sér ekki saman um það og það er alls ekki samstaða um aðild að Evrópusambandinu innan þings þá á að varpa málinu til þjóðarinnar og frasinn er: Treystum þjóðinni.

Mér finnst rétt að nefna það hér í þessu sambandi að þjóðaratkvæðagreiðslum er markaður ákveðinn efnislegur rammi í stjórnarskránni. Það eru auðvitað lög um kosningar um þjóðaratkvæðagreiðslur en þau er um framkvæmd á slíkum atkvæðagreiðslum. En efnislegur rammi þjóðaratkvæðagreiðslna er markaður í stjórnarskrá. Þjóðaratkvæðagreiðslur eru þannig og hafa verið notaðar þannig að þjóðin fær mál sem forseti hefur neitað að staðfesta en þingið hefur tekið afstöðu til með því að samþykkja tiltekin lög. En ef forsetinn neitar að staðfesta þá er málinu varpað til þjóðarinnar. Treysta þjóðinni er hins vegar bara frasi þegar kemur að þessari stóru skoðanakönnun sem þessi þjóðaratkvæðagreiðsla í ágúst í rauninni er. Við höfum um það dæmi. Við höfum haft þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá. Sú þjóðaratkvæðagreiðsla var höfð að engu. Við höfðum þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-samning sem þingið samþykkti en var varpað til þjóðarinnar vegna þess að forseti neitaði að staðfesta. Þjóðin hafnaði slíkum samningi en þingið allt að einu lagði til og samþykkti annan samning. (Forseti hringir.) Allt tal um að treysta þjóðinni í þessu sambandi er afskaplega ómálefnalegt og villandi. Það er brýnt að það verði umræða um eðli þjóðaratkvæðagreiðslu, þessarar sem annarrar, í aðdraganda þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst.