157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[11:28]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er rétt að byrja á að þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir fína ræðu. Nú höfum við setið í nokkur ár saman í fjárlaganefnd og erum m.a. með innviðafélagið þar inni núna. Það er kannski þessi grunnspurning: Hefði innviðafélagið ekki átt að klárast í meðförum fjárlaganefndar fyrir svona tveimur, þremur mánuðum áður en við ræðum samgönguáætlun? Er ekki skrýtið að við séum að ræða hér samgönguáætlun 2026–2040 og næsta mál á dagskrá sé innviðafélagið sem allt saman byggist á? Það er rétt að taka undir það að samgönguáætlun 2026–2040 er engan veginn fullfjármögnuð og það er rétt hjá hv. þingmanni að annað og þriðja tímabilið er með engum hætti fjármagnað. En fyrsti hluti, svokölluð aðgerðaáætlun, sem við tölum almennt um sem framkvæmdaáætlun samgönguáætlunar, byggir á innviðafélaginu og fjármagni tengdu því. Ég tek undir þær athugasemdir sem koma fram hjá hv. þingmanni varðandi Fljótagöngin og þær tölur sem við erum að fá í hendur núna, að tekjur af umferðinni gætu verið svona 15% af framkvæmdinni þannig að ríkið þarf að koma með 85% fjármagn í gegnum fjárlögin inn í framkvæmdina, sem eru þá sirka 18,5 milljarðar á næstu þremur árum eða svo. Það er umtalsvert fé. Það er nú ekki alveg jafnt eftir árum en það eru þá sirka rúmir 6 milljarðar á ári ofan á allt annað. Er þetta ekki lykilatriðið, að þessi tímalína hafi ekki verið nægilega góð? Síðan er þetta samspil við fjármálaáætlun sem þá eiginlega þarnæsta mál hér á dagskrá næstu vikuna eða svo. Hvernig lítur hv. þingmaður á þetta?