157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[11:30]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir spurninguna. Ef við byrjum á Fljótagöngum þá er þetta bara ósköp einfaldlega sett niður þannig, svo ég lesi bara upp úr bls. 28 í samgönguáætlun: Samtals jarðgangaáætlun, þ.e. sem sagt það sem er að fara inn og verður líklega samþykkt hér. Árið 2026 eru þetta 410 milljónir, 2027 eru þetta 410 milljónir og 2028 eru þetta 230 milljónir. Svo kemur hér lykiltextinn: Samtals utan fjárhagsramma, og það er 2027, 5,9 milljarðar, 2028 9,3 milljarðar, 2029 5,2 milljarðar og 2030 3,3 milljarðar og síðan einhverjir á tímabili tvö og þrjú, miklu meira. Þetta er algjörlega skýrt: Það vantar fjármagn inn í þetta. Mér finnst bara mjög sérstakt, og þess vegna segi ég það, að ef það er vilji meiri hlutans hér að setja Fljótagöng inn, eins og ég heyri; maður heyrir það í umræðunni, maður heyrir það frá hæstv. ráðherra og maður heyrir hér á þingmönnum, þá langar mig kannski aðeins að snúa þessu andsvari pínulítið á haus og spyrja hv. þingmann, sem hefur mikla þingreynslu og hefur setið lengi í fjárlaganefnd: Ef það er raunverulegur vilji þeirra, er þá ekki fjármálaáætlun röng? Er þá ekki einboðið að 2027 og 2028 muni koma 5,9 og 9,3 milljarðar? Og er þá ekki eðlilegt að gera ráð fyrir því í fjármálaáætlun og stilla henni upp þannig ef það er raunverulegur vilji fólks að gera þetta? Vegna þess að allt tal um að þetta geti farið innviðafélag og sé einhvern veginn stjörnumerkt skiptir ekki máli. Fjármagnið þarf að koma frá ríkinu.