samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Þetta er nefnilega lykilatriði. Þess vegna talar maður um samhengi innviðafélagsins, samgönguáætlunar, sem er hér í umræðunni í þinginu, og síðan fjármálaáætlunar. Það er þá klárt mál að það þarf að koma breytingartillögu við fjármálaáætlun til að tryggja fjármögnun tengda samgönguáætluninni. Innviðafélagið er svolítið óljóst. Það er að þróast og það hefur þróast mikið á síðustu dögum í samtölum þeirra sem hafa verið að vinna við að koma þessu innviðafélagi á koppinn. Skilningurinn hefur verið að breytast á síðustu dögum eftir að við höfum fengið frekari upplýsingar um málið. Mér skilst í þessari umræðu, t.d. varðandi Sund & Bælt-félagið í Danmörku, að löggjöfin í kringum það hafi farið sex sinnum í gegnum danska þingið. Færeyingar hafa fjórum sinnum farið með sitt félag um jarðgöngin og samgöngumannvirki þar í gegnum færeyska þingið. Þannig að lykilatriðið er og hefur alltaf verið þessi spurning, sem maður hefur verið að spyrja sjálfan sig í fjárlaganefnd þegar við ræðum innviðafélagið, hvort þessi löggjöf sem er þarna á bak við sé með þeim hætti að íslenskir lífeyrissjóðir, innviðafélög á vegum lífeyrissjóðanna og svo aftur erlendir sjóðir sem gætu hugsað sér að koma inn með fjármagn með svipuðum hætti og er í Færeyjum, og við þekkjum þá sögu ágætlega — að þessi löggjöf standist þær kröfur sem þessir aðilar gera. Ég vona svo sannarlega að þannig sé það vegna þess að ég er ekkert endilega, alls ekki, að tala gegn innviðafélaginu. Það er bara skrýtið að við séum á þessum stað að ræða samgönguáætlun sem er ekkert endilega sérstaklega fullfjármögnuð nema innviðafélagið og allt sem því tengist gangi upp. Það er svolítið lykilatriði og lykillinn að öllu samhengi hlutanna.