157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[11:35]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir seinna andsvarið. Jú, vissulega er þetta hárrétt hjá hv. þingmanni, algjörlega hárrétt. Auðvitað þarf að byrja einhvers staðar og einhvern tímann. Ég hef sagt það hér að ég er ekki mótfallinn innviðafélagi. Ég held að innviðafélag í einhvers konar mynd sé eina leiðin okkar fram á við í samgöngumálum á Íslandi. En það skiptir máli hvernig innviðafélagið er sett upp, hvernig strúktúrinn er á félaginu. Það er svolítið erfitt að átta sig á því, eins og hv. þingmaður bendir á, hverjir muni koma þarna inn með fjármagn. Kemur einhver inn með fjármagn? Það fer náttúrlega eftir því hvernig verkefnin munu líta út og hvernig ábatagreining af þessum verkefnum verður fyrir fjárfesta. Það er erfitt að spá í það. Við vitum að Hvalfjarðargöngin verða að öllum líkindum arðbær, sömuleiðis Sundabraut og fleiri framkvæmdir. En það sem ég hef áhyggjur af, og ég hlakka svolítið til að fara í þá umræðu í tengslum við innviðafélagið síðar, er að þessar framkvæmdir sem innviðafélagið mun geta ráðist í eru að langmestu leyti hér í kringum höfuðborgarsvæðið og að við sem þing, Alþingi Íslendinga, erum að aftengja okkur að mjög stórum hluta framkvæmdum við samgöngumannvirki okkar til lengri tíma með stofnun innviðafélags og með Betri samgöngum.