samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir áhugaverða ræðu. Mig langar að eiga við hann orðastað um svokallað innviðafélag sem við ætlum að ræða hér síðar í dag. Nú er það svo og við þekkjum það báðir að samgöngur úti á landi eru gríðarleg lyftistöng fyrir atvinnulíf, félagslíf og menningu í viðkomandi byggðarlögum. Jarðgöng hafa stórbreytt ásýnd og sóknarmöguleikum byggðarlags eins og Fjallabyggðar og við getum nefnt fleiri byggðarlög austur á landi og á Vestfjörðum í þeim efnum. En við þurfum að mati þess sem hér stendur að hraða þessari uppbyggingu með öllum ráðum. Það er lífsspursmál fyrir margar byggðir, svo sem á sunnanverðum Vestfjörðum, á norðausturhorninu, eftir atvikum á Tröllaskaga, að ráðist verði í frekari jarðgangagerð til að efla þessar byggðir og skapa enn meiri byggðafestu. Við þekkjum það báðir sem fyrrverandi og núverandi landsbyggðarþingmenn að þetta er ákallið í þessum byggðum. Það er ákall eftir betri og ekki síst öruggari samgöngum jafnt að vetri sem sumri. Því langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að innviðafélag af því tagi sem talað er um geti flýtt þessum áformum um land allt, ekki síst á þeim svæðum sem þurfa mest á betri samgöngum að halda og eru eftirbátar þeirra samgöngumáta sem við þekkjum t.d. á suðvesturhorninu. Telur hann að innviðafélag með þeim hætti sem hann kýs að túlka það geti flýtt verulega fyrir framkvæmdum hér á landi inn í komandi framtíð?