157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[11:39]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fínt andsvar. Þetta er mjög góð spurning, hvort ég telji að innviðafélagið geti flýtt og sé til bóta. Já, ég tel það, ég hef talað fyrir innviðafélagi í mörg ár. Ég held að innviðafélag sé akkúrat leiðin sem við þurfum að fara til þess að hraða framkvæmdum, taka framkvæmdir sem eru arðbærar og koma þeim í innviðafélag þannig að við getum tekið þær út fyrir samgönguáætlun. Það skiptir hins vegar máli hvernig innviðafélagið er uppsett og hvernig hugmyndafræðin er. Innviðafélag og innviðafélag eru ekki það sama. Ég tek undir það sem hv. þingmaður segir hér, hvernig jarðgöng hafa gjörbreytt byggðafestu og bara byggðamálum á Íslandi. Við erum með mjög mörg dæmi um það víða að jarðgöng hafa gjörsamlega gjörbreytt búsetuskilyrðum á landsbyggðinni. Hvort þetta innviðafélag geti hjálpað til við það — já, það er hægt. Þá hefði, ef mönnum er alvara með því sem þeir segja hér í samgönguáætlun að Fljótagöng séu nr. 1, 2 og 3, eða alla vega nr. 1, þá hefðu menn átt að setja fjármagn í fjármálaáætlun og samgönguáætlun vegna þess að það er algjörlega klárt að fjármagn fyrir Fljótagöng þarf að koma úr ríkissjóði. Það þarf að vera A3-félag vegna þess að þetta er ekki arðbært. Ef mönnum hefði verið alvara og hefðu viljað sýna á spilin þá hefðu menn að sjálfsögðu, vegna þess að við erum hér að ræða bæði fjármálaáætlun og samgönguáætlun og innviðafélag á sama tíma, átt að setja fjármagnið inn í fjármálaáætlun og inn í samgönguáætlun. (Forseti hringir.) Þá væri mönnum ljóst að ríkisstjórninni væri alvara í því að fara í Fljótagöng. Nú er bara ekkert í þessu plaggi (Forseti hringir.) sem segir það að menn ætli að fara í Fljótagöng annað en einhver loforð og fögur fyrirheit, því miður, virðulegur forseti.

(Forseti (BHar): Forseti minnir á tímamörkin.)