samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Það er ánægjulegt að heyra hv. þingmann tala fyrir innviðafélagi. Sá sem hér stendur er mjög hrifinn af þeirri leið og betur hefði farið svo að fyrri ríkisstjórnir hefðu efnt til álíka innviðafélags langtum mun fyrr heldur en raunin er vegna þess að við þurfum lífsnauðsynlega á fleiri öruggum jarðgöngum að halda.
Seinni spurning mín er þessi til hv. þingmanns: Sér hann að einhverju leyti annmarka á innviðafélagi? Sá sem hér stendur getur séð fyrir sér umræðu í þá veru að innviðafélagið muni einkum og sér í lagi einbeita sér að þéttbýlustu svæðum landsins og fyrir vikið sitji að einhverju leyti dreifbýlustu svæði eftir. Aðrar raddir segja að akkúrat muni innviðafélag hafa þau áhrif að leiðrétta samgönguvanda á vissum svæðum sem muni leiða til þess að það verði meiri peningar í ríkissjóði til að fara í samgöngur í dreifðustu byggðunum. Mig langar aðeins að deila með hv. þingmanni þessum vangaveltum vegna þess að innviðafélag mun að sjálfsögðu kalla á margvíslegar efasemdir þótt fyrir liggi að að stórum hluta séu kostir þess augljósir, algerlega augljósir, þegar kemur að hraðari uppbyggingu. En hvaða umræðu sér hv. þingmaður fyrir sér úti í hinum dreifðu byggðum þegar kemur að umræddu innviðafélagi? Mun því verða mótmælt í einhverjum byggðum eða munu landsmenn almennt séð fagna hugmyndinni?