157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[11:44]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvarið. Það er nú nánast ómögulegt að reyna að svara þessari yfirgripsmiklu spurningu hv. þingmanns á tveimur mínútum. Ég skal reyna og ég mun koma betur að þessu í ræðu minni á eftir og ég hvet hv. þingmann til að hlusta á hana. Hvaða annmarkar? Það eru alveg augljósir annmarkar eða gul og rauð spjöld sem eru á lofti. Það er ljóst, eins og ég sagði hérna áðan, að þetta markaðspróf mun aðallega virka hér í kringum höfuðborgarsvæðið. Það er rétt. Það er líka rétt að það mun þá mögulega losa eitthvert fjármagn úr samgönguáætlun sem er hægt að nýta þá annars staðar á landinu. Það er líka rétt. Það sem er hins vegar eitt af gulu flöggunum er að þegar við erum búin að stofna innviðafélag og það verður komið undir C-hluta félag þá verður yfir því stjórn sem við munum ekki hafa nein pólitísk afskipti af, megum ekki og eigum ekki. Það er algjörlega á markaðslegum og viðskiptalegum forsendum sem innviðafélagið mun taka sínar ákvarðanir um hvaða verkefni það mun fara í og á hvaða tíma. Við erum þá búin að færa þetta úr höndum Alþingis yfir í C-hluta félag sem við höfum ekkert um að segja. (Gripið fram í: Ohf.) Ohf. Og þetta er eins með Betri samgöngur.

Það sem ég var að segja áðan í ræðu minni er að við erum búin að taka með þessu ansi stóra köku og langstærstu kökuna til lengri tíma litið í uppbyggingu samgöngumannvirkja á landinu og færa úr höndum þingsins yfir í C-hluta. Er það góð þróun eða slæm? Það á bara eftir að koma í ljós. Ég óttast það töluvert að við séum búin að framselja töluvert mikið af valdi okkar hér á Alþingi (Forseti hringir.) til að ákvarða hvernig uppbygging samgangna eigi að vera.